Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Ármann: „Seinustu áratugi hafa rannsóknir sýnt að íslenska sé óvinsæl á flestum skólastigum“

Ármann Jakobsson.
Ármann Jak­obs­son.

Formaður íslenskrar málnefndar, Ármann Jakobsson, segir í grein að „seinustu áratugi hafa rann­sóknir sýnt að íslenska sé orðin óvinsæl námsgrein á flestum skóla­stigum og í kjölfarið er spurt hvort óvinsældirnar nái til tungu­málsins sjálfs.“

Bætir við:

„Ef til vill er það ansi stórt stökk í rökfærslunni í ljósi þess að íslenska er grundvallar­þáttur í lífi allra íslenskra málhafa, svo ríkur þáttur að allt eins mætti spyrja hvort hendur okkar eða fætur séu óvinsælar. Íslenska er annað og meira en námsgrein heldur aðferð okkar við að hugsa, tjá okkur og eigin samskipti. Einmitt þess vegna er flestu öðru mikil­vægara fyrir íslenska málhafa að hún lifi af því að án hennar verðum við eins og marsbúar á jörðinni.“

Ármann færir í tal að „um náms­greinina íslensku gegnir auðvitað öðru máli en erfitt er samt að ræða hana eins og hverja aðra námsgrein því að hún hefur algjör sérstöðu sem sú eina sem er ætluð öllum jafnt frá upphafi náms til stúdents­prófs, eftir að nemendur hafi kosið með fótunum og yfirgefið aðrar náms­greinar, t.d. stærð­fræði sem íslenski stúdenta­hópurinn hefur afar mismikla menntun í.

Sem grein sem enginn hefur beinlínis valið er íslenska í skóla­kerfinu í nokkurri hættu á að enginn tengi sig sérstak­lega við hana. Eins þurfa íslensku­kennarar að glíma við allan hópinn, einir kennara.“

Ármann spyr:

„Gæti skóla­kerfið staðið sig betur?

Þessarar spurningar þurfum við öll sem kennum íslensku vitaskuld að velta reglulega fyrir okkur. Samkvæmt minni reynslu stendur skóla­kerfið sig býsna vel í að efla þekkingu nemenda en stundum mætti áherslan sennilega vera meiri á að vekja áhuga.“

Hann nefnir að kennarar þurfi að hafa í huga að fólk lærir fyrst og fremst sjálft – og því sé áhuginn sem kennarar kveikja ekki ómikilvægari en sú þekking sem við komum til skila:

„Starfið felst ekki síður í því að fá fólk til að langa til að lesa Halldór Laxness en að sjá til þess að það lesi hann. Í opinberri umræðu er ansi oft hrapað að ályktunum eins og að námsefnið sé erfitt og leiðinlegt og nemendur hafi ekki áhuga. En þá er gott að hugsa til Soffíu frænku sem sagði við ræningjana sem sögðust ekki kunna það sem hún bað þá um að gera: „Þá áttu að læra það.“

Soffía gafst ekki upp fyrir vinnu­fælnum ræningjunum. Eins getum við íslensku­kennarar sagt við okkur sjálf: „Þá er það okkar hlutverk að gera íslensku skemmtilega“ segir Ármann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum