Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Skopteiknarar Múhameðs fóru huldu höfði á Íslandi

Kurt Westergaard, líklega þekktasti skopteiknari Dana.
Kurt Westergaard, lík­lega þekkt­asti skopteikn­ari Dana.

Halldór Kristján Baldursson teiknari segir að dönsku skopmynda­teikn­ararnir sem gerðu alræmt grín af Múhameð spámanni hafi kom hingað til lands nokkrum árum síðar og farið huldu höfði. Þeir virðast hafa óttast enn um líf sitt, þó nokkur tími hafi verið liðinn og þeir væru staddir á Íslandi, þar sem fáir múslímar búa og engin saga er af öfgum þeim tengdum.

„Já, þessir dönsku teiknarar voru hérna á árshátíð í kringum 2007-8 og fóru mjög leynt og þorðu ekki að koma í viðtöl,“ segir Halldór í helgar­viðtali við Reyni Traustason. Árið 2006 birtist í Jyllandsposten skopmynd af Múhameð spámanni sem múslímar voru ekki sáttir við.

Það var búið að gefa á þá veiði­leyfi. Þetta er rosalegt hatur. Skildir þú hvað er á bak við þetta?

„Ég skil ekki af hverju fólk gaf skop­myndinni þetta vægi. Ef við förum í grunn­söguna þá var verið að gefa út bækur í Danmörku um trúar­brögð og það var búið að gefa út eina um Búdda og þessi höfundur vildi gera bók um Múhameð. Það hófst herferð gegn því af því að það má ekki teikna Múhameð og Jyllandsposten fékk teiknara til að teikna Múhameð í nafni tjáningar­frelsisins. Þannig að þetta var einhvers konar ögrun gagnvart því að þessi viðkomandi höfundur í landi sem metur tjáningar­frelsið mikils fékk ekki að gefa út bókina sína. Og það var nýr veruleiki fyrir Dani. Jyllandsposten fór út í þetta,“ segir Halldór.

Hann segir að kristnir hafi verið nýhættir að láta svona þegar þetta gerist. „Síðan gleymdist þessi forsaga með þessa bók. Og ritstjóri Jyllandsposten sagði „hver vill teikna Múhameð? Okkur finnst það mikilvægt til þess að leggja áherslu á tjáningar­frelsi teiknara.“ Síðan var þessu tekið sem mikilli ögrun frá þeim sem eru íslams­trúar. Þetta var blásið út og það var bætt við ljótari myndum. Í súpunni sátu síðan þessir teiknarar á endanum. Margar af þessum myndum eru mjög saklausar. Aðrar hafa dálítið rasískt yfirbragð. En alltaf þarf maður að hugsa hver er það sem ræður hvað við megum teikna; hvenær getur þú fært ný gildi yfir á samfélagið því við teiknum auðvitað ekki hvað sem er. Ég er ekkert að teikna alla hvernig sem er. Það er alls konar tabú í gangi. Og þarna var búið að bæta við tabú sem við vorum nýbúin að losna við varðandi kristnina; það mátti gera grín að kristninni sem mátti ekki einhverjum örfáum áratugum áður. Hvað þá öldum áður. Það hefur verið dauðasök einhvern tímann.“

En Halldór hefur þó að sjálfsögðu sjálfur teiknað Múhameð. Þá var Múhameð kominn til himna. „Það voru tvær myndir. Ég man ekki hvernig þær voru. Maður dælir út mynd eftir mynd eftir mynd og það er kannski tilviljun hvað það er sem fólk grípur,“ segir teikn­arinn og bætir við að það skipti almennt máli hver sér myndina og ákveður að móðgast og gera frétt úr því; móðgast samkvæmt sínum gildum.

Hér má lesa viðtalið við Halldór í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað