Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Arkitekt vill rífa gamalt hús í Vesturbænum: „Byggð voru árið 1923 eða fyrr eru friðuð“

Sótt hefur verið um niðurrif á Sólvallagötu 47 Myndin er samsett
Sótt hefur verið um nið­ur­rif á Sól­valla­götu 47 Myndin er sam­sett

Jakob Líndal arkitekt hefur sóst eftir leyfi hjá Skipulags­yfirvöldum borgarinnar að láta rífa Sólvalla­götu 47 og byggja þess í stað nýtt fjölbýlishús. Var málið tekið fyrir á embættis­afgreiðslu­fundi skipulags­fulltrúa á dögunum.

Húsið sem stendur við Sólvalla­götu 47 var uppruna­lega byggt 1910 var stækkað og mikið endurnýjað á árunum 1990-2000. Breytingarnar voru höndum Páls V. Bjarnason arkitekts sem einnig er fyrr­verandi formaður húsfriðunar­nefndar.

Framkemur í fundar­skrá skipulags­fulltrúa:

„Lögð fram fyrir­spurn Jakobs Líndals, dags. 31. janúar 2023, ásamt bréfi, dags. 1. febrúar 2023, um að rífa eða flytja núverandi íbúðarhús á lóð nr. 47 við Sólvalla­götu og byggja nýtt fjölbýlishús þess í stað. Vísað til umsagnar verkefnis­stjóra.“ 

Jakob Líndal stofnaði ALARK arkitekta árið 1993 með Kristjáni Ásgeirs­syni, og síðan þá hefur stofan unnið að marg­víslegum verkefnum, bæði fyrir einka­aðila sem og opinberar stofnanir. Segir á síðu stofunnar að forsvars­menn vilji skapa arkitektúr sem hefur fólkið og umhverfið í forgangi.

„ALARK arkitektar vinna náið með viðskipta­vinum sínum að því að skapa faglegan, hagkvæman og fallegan arkitektúr. Við vinnum á fjöl­breyttu sviði byggingar­listar, hönnunar, skipulags og ráðgjafar.“

Breyting á lögum

Breyting varð á lögum er varða menningar­minjar og tók hún gildi 30. desember síðastliðinn. Lögin sem umræðir eru nr. 80/2012 um menningar­minjar og varða aldurs­mörk friðaðra og umsagnar­skyldra húsa og mann­virkja. Hundrað ára reglan féll úr gildi og er í dag miðað við ártalið 1923. Eftir breytingu hljóðar 1. mgr. 29. gr. laganna svo:

Öll hús og mann­virki sem byggð voru árið 1923 eða fyrr eru friðuð.

Hins vegar var gerð breyting á aldurs­mörkum umsagnar­skyldra húsa og mann­virkja frá 1925 í 1940. Eftir breytingu hljóðar 1. mgr. 30. gr. laganna svo:

Eigendum húsa og mann­virkja sem ekki njóta frið­unar en byggð voru 1940 eða fyrr, svo og for­ráða­mönnum kirkna sem reistar voru 1940 eða fyrr, er skylt að leita álits hjá Minja­stofnun Íslands með minnst sex vikna fyr­ir­vara ef þeir hyggj­ast breyta þeim, flytja þau eða rífa.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim