Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Egill leiður á feluleik flugfélaganna: „Neytendasamtökin mættu vel skoða þetta“

Egill Helgason.
Egill Helgason.

Egill Helgason kveðst leiður á „ógegn­sæjum flug­fars­gjöldum“ flug­fé­lag­anna.

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Egill Helgason skrif­aði Facebook-færslu í gær sem vakti athygli og ljóst að margir eru sam­mála því sem hann segir. Kveðst hann vera orð­inn afar leiður á „ógegn­sæjum flug­fars­gjöldum“. „Í raun eru öll verð sem gefin eru upp á slíkum síðum röng – eins og maður kemst að þegar maður flettir áfram,“ skrif­aði Egill og bætti við: „Vissu­lega ekki sér­ís­lenskt fyr­ir­bæri en Neyt­enda­sam­tökin mættu vel skoða þetta.“

Eins og áður segir vakti færslan athygli en fjöl­margir lík­uðu við hana og margir skrif­uðu athuga­semdir. Meðal ann­ars Páll nokkur sem bendir á þá leið sem Ástralar fara í þessum málum. „Þetta var svona í Ástralíu en hér er búið að herða regl­urnar þannig að maður getur alltaf borgað það far sem boðið er á vef­síðu flug­fé­lags­ana. Einu gjöldin sem þau geta „falið“ eru val­kvætt eins og t.d. fyrir að fá að velja sæti, kolefn­is­jöfnun (frjálst val), glald­miðla­gjöld ef greitt er í erlendum gjald­miðli, eða svo far­ang­urs­gjöld (bara sum félög). Þessi breyt­ing varð ein­hvern tíma á síð­ustu 10 árum og það var mikil fram­för.“

Bjarni nokkur rit­aði einnig athuga­semd: „Þetta er svona um allan heim. Nú bæta flest félög við gjöldum vegna far­ang­urs, líka hand­far­ang­urs. Svo er nýr lofts­lags­skattur yfir­vof­andi. Ryanair vildi fá að rukka inn á kló­settið í flugi, en var bannað af örygg­is­á­stæðum.“

Hinn skel­eggi blaða­maður og fyrrum Kátur piltur, Jakob Bjarnar Grét­ars­son skaut föstum skotum á Egil og skar sig þannig nokkuð úr hvað athuga­semdir varð­aði: „Mér er alveg sama því ekki hef ég sam­visku í að vera á stöð­ugu flandri um loftin blá með til­heyr­andi mengun. En þeim er sama um það þessum sem tíð­ræð­ast er um lofts­lagsvá.“

Grímur Atlason svar­aði Jakobi með húmor: „Enda stór­sér á for­gjöf­inni!“

Blaða­mann­inum fannst þetta lítið fyndið og svar­aði af bragði: „Já, þið hafið ekki áhyggjur þessir gosar, þú og Egill sem eruð eins og flókatrippi um allar koppa­grundir. Það er ykkar val en sparið ykkur þá í Tún­berger­í­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027