Vilbergur Magni Óskarsson er fyrrum skólastjóri Skipstjórnarskóla Tækniskólans, sem áður nefndist Stýrimannaskólinn, en hann starfar í dag sem kennari við skólann. Hann starfaði áður á fiskiskipum, varðskipunum og sem sigmaður í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hann segir sögu sína í Sjóaranum.
Vilbergur ólst upp á Eyrarbakka þar sem neistinn til að fara til sjós og gerast stýrimaður og seinna skipherra, kviknaði.
Í þessum seinni hluta viðtalsins við Vilberg Magna segir hann meðal annars frá því þegar hann var ræstur út í björgun á þyrlu Landhelgisgæslunnar til að bjarga ferjuflugmanni sem var yfir Snæfeællsnesi á einum hreyfli. Honum var ráðlagt að lenda á Rif en hann hafnaði því þar sem hann átti bókað hótelherbergi í Reykjavík. Þyrlan hélt af stað og það stóð á endum að þegar hún kom til móts við flugvélina missti hún hinn hreyfilinn og þurfti að nauðlenda á Faxaflóa.
Vilberg seig tafarlaust niður að flugvélinni. Flugmaðurinn var alblóðugur á skyrtunni. Það stóð á endum að þegar mennirnir voru hífðir upp í þyrluna sökk flugvélin. Þar sem sjórinn var aðeins á að giska 4 til 6 gráður hefði flugmaðurinn ekki lifað lengi í sjónum.
Eftir að manninum hafði verið bjargað og honum komið á sjúkrahús. Hann hafði svo samband við Vilberg og var ósköp þakklátur en sár vegna þess að Vilberg hefði mátt bjarga farangrinum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






































Athugasemdir