Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Reif niður 126 ára hús án leyfis: „Ekkert hægt að gera annað en það að harma að húsið er farið”

Gamli Lundur
Gamli Lundur Mynd: Trausti Hafsteinsson

Árið 1984 varð sá vandræða­legi atburður á Akureyri að friðað hús var rifið, án vitundar bæjar­yfirvalda.

Húsið var það elsta á Oddeyrinni á Akureyri en það var kallað Gamli Lundur og var 126 ára gamalt. Þar hafði lengi verið búið en síðustu ár þess hafði járnsmíða­verkstæði verið starfrægt þar. Bæjar­yfirvöld höfðu friðað húsið en trésmíða­meistarinn Jón Gíslason keypti húsið 1983. Lét hann rífa það án samráðs við bæjar­yfirvöld eða Húsfriðunar­nefnd ríkisins.

DV fjallaði um málið 4. júlí 1984:

FRIÐAÐA HÚSIÐ FÓR Á HAUGANA

Elsta hús á Oddeyrinni á Akureyri hefur verið rifið og því ekið á haugana. Húsið var friðað í B-flokki en hvarf þrátt fyrir það án þess að bæjar­yfirvöld eða Húsfriðunar­nefnd ríkisins hefðu hugmynd um. Gamli Lundur var þetta hús kallað og stóð við Eiðsvalla­götu. Húsið var 126 ára gamalt og lengi búið í því en hin seinni ár rekið þar járnsmíða­verkstæði í fyrra keypti Jón Gíslason trésmíða­meistari húsið af Akureyrarbæ. Hann sagði að bæjar­yfirvöld hefðu vel vitað að ekkert nýtilegt var í húsinu. Það hefði verið dómur sérfróðra manna. Jón sagðist hafa mælt húsið nákvæmlega áður en hann reif það, reyndar hefði verið búið að færa það af grunninum fyrir nokkru. Tvisvar sagðist hann hafa leitað til þjóð­minjavarðar um að senda menn til að líta á húsið en þeir hefðu aldrei komið. Það hefði því ekki verið um annað að ræða en rífa húsið sem lika hefði verið eina leiðin til að komast að því hvernig það var byggt. Hann ætlar að byggja nýtt hús nákvæmlega eins og það gamla en ekki er ákveðið tU hvers það verður notað. Sigfríður Þorsteins­dóttir, forseti bæjar­stjórnar, á sæti í byggingar­nefnd bæjarins. Hún staðfesti að nefndin hefði aldrei fengið erindi um niðurrif Gamla Lundar, né stjórn Húsfriðunar­sjóðs. Í þessu máli hefði verið eðlilegast að leita tfl bæjar­yfirvalda eða Húsa­friðunar­nefndar ríkisins. „En úr því sem komið er verður að gera sem best úr öllu,” sagði Sigfríður. „Það er ekkert hægt að gera annað en það að harma að húsið er farið,” sagði Jón Geir Ágústsson bygginga­fulltrúi. Hann sagði að ljóst hefði verið að húsið var ónýtt en rétta leiðin hefði verið að leita formlega eftir niðurrifi. Byggingar­nefnd yrði gerð grein fyrir málinu innan tíðar, sagði hann, en ljóst að lítið væri hægt að hafast að. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis