Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Minkur mætti Gísla í útidyrahurðinni: „Ég hvæsti á móti honum“

Frjáls­íþrótta­kappanum Gísla Sigurðs­syni brá heldur betur í brún þegar skór sem hann hafði séð á þröskuldinum heima hjá sér á Sauðár­króki, fór að hreyfast.

Í desember árið 1992 vissi Gísli Sigurðsson varla hvað á sig stóð veðrið þegar skór sem hann taldi sig sjá liggja á þröskuldinum á útihurðinni, var alls enginn skór, heldur sprell­lifandi minkur.

Og hvað gerði Gísli? Auðvitað greip hann byssu og skotfæri og skaut minkinn á færi.

DV fjallaði um málið þann 11. desember 1992 á eftir­farandi hátt:

Minkurinn í íbúðarhús

-eigandi íbúðarinnar skaut hann á færi

„Ég var nýkominn heim seint um kvöld, fannst hitinn óbærilegur í húsinu og ákvað að hafa útidyra­hurðina opna smástund. Skömmu síðar þegar ég leit til dyranna fannst mér eins og væri kominn skór á þröskuldinn og fannst það undarlegt, svo sá ég að þetta hreyfðist og leist ekkert á blikuna,“ sagði Gísli Sigurðsson, frjáls­íþrótta­kappi og lækna­ritari, en í síðustu viku skaut hann mink við heimili sitt á Króknum eftir nokkurn eltinga­leik. „Minkurinn kom síðan inn á mottuna í forstofunni og ætlaði sér greini­lega inn. Ég hvæsti á móti honum og minksi sá þá sitt óvænna og hopaði út úr húsinu. Í skyndingu náði ég mér í byssu og skotfæri og ætlaði að sjá hvað verða vildi fyrir utan. Minkurinn fór ekki lengra en út á planið fyrir framan bílskúrinn, sem er upphitað, og virtist forðast að fara í snjóinn. Það var smá eltinga­leikur á planinu, hann faldi sig undir bílnum í nokkur skipti og ég rak hann jafn­harðan þaðan. Þegar hér var komið ver veiði­eðlið komið svo upp í mér að þegar ég náði að hrekja hann að útjaðri plansins hlammaði ég á hann einu skoti. Ég áttaði mig eiginlega ekki fyrr en hvellurinn kvað við, hvað ég hafði eiginlega gert, og klukkan rétt um tólf á miðnætti. Nágrannarnir urðu samt einskis varir,“ sagði Gísli en hann býr í raðhúsi í Rafta­hlíðinni. Gísli heldur að hér hafi verið á ferðinni búrminkur. Er greinilegt að varasamt getur reynst að hafa útidyr og bílskúrs­hurðir opnar. Gísli sagðist í fyrra­vetur hafa séð greini­lega slóð eftir mink hringinn í kringum sjúkra­húsið, þann hafi greini­lega langað til að komast inn í ylinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni