Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Rakel Þorbergsdóttir hættir á RÚV: „Það er óvægni í umræðunni og stutt í heykvíslar“

Rakel Þorbergsdóttir
Rakel Þor­bergs­dóttir

„Það lá alltaf fyrir af minni hálfu að ég yrði ekki frétta­stjóri lengur en  8-10 ár. Það er í takt við þá skoðun mína að stjórn­endur eigi ekki að ílengjast of lengi í krefjandi stöðu sem þessari. Þetta er sólar­hrings skuld­binding allt árið um kring og oftar en ekki í ólgusjó. Frétta­stofan stendur sterk núna og er öflug samkvæmt öllum mæli­kvörðum sem gerði ákvörðunina auðveldari,“ segir Rakel Þorbergs­dóttir sem hefur ákveðið að sækja á önnur mið eftir að hafa staðið vaktina sem frétta­stjóri RÚV undan­farin ár. Hún viðurkennir að þessu fylgi blendnar tilfinningar.

Það þarf að hafa sterk bein í þessu starfi

„Já, tvímæla­laust. Frétta­stofur RÚV hafa verið svo stór hluti af mínu lífi samfellt í 22 ár og hér hef ég eignast mjög góða vini. Það eru ótrúlega skemmtilegir félagar sem hafa gert þetta ferðalag svo eftir­minnilegt. Það verður erfitt að kveðja þá.“

Starfinu fylgir ýmiss konar lærdómur

„Mesti lærdómurinn hefur komið í gegnum stór og erfið verkefni. Hvort sem um ræðir stór mál sem við höfum verið með til umfjöllunar sem fram­kallað hafa átök af einhverjum toga eða erfiðar ákvarðanir sem ég hef þurft að taka. Það þarf að hafa sterk bein í þessu starfi, en ég hef líka lært að það er ekki veikleika­merki að bogna í mestum átökunum og að þroska­ferlið er mest þegar mótvindurinn er sterkastur. Maður lærir líka ýmislegt um mannlegt eðli og einnig að hávaði fárra í bergmáls­hellum endur­speglar ekki almenna skoðun.“

Hún er sem frétta­stjóri búin að vera með puttana á púlsinum og er spurð hvernig henni finnist samfélagið hafa breyst á þessum árum.

„Það hefur orðið gríðarleg tækni­þróun á þessum tveimur áratugum sem hefur gerbylt frétta­öflun, vinnslu og fram­setningu. Beinar útsendingar eru tæknilega margfalt auðveldari, við eigum auðveldara með að fá ábendingar og efni frá almenningi og hlutirnir gerast hraðar en áður. Samfélags­miðlar og sítengdur almenningur hefur breytt öllu umhverfinu; það er margt jákvætt við það en líka skugga­hliðar. Það er óvægni í umræðunni og stutt í heykvíslar en líka ýmiss konar árásir og áreitni gagnvart blaða- og frétta­mönnum sem hefur ekkert með málefna­lega rökstudda gagnrýna að gera.“

Aðspurð hvað sé eftir­minnilegast, hvað standi upp úr og hvert sé eftir­minnilegasta skúbbið, segir Rakel:

„Það hefur ótal margt gerst á þessum árum en auðvitað standa stór mál eins og Panama­skjölin og Samherja­málið upp úr í þeirri yfirferð. Panama­þátturinn fór í loftið í 3. apríl 2016 og sá sunnu­dagur var rafmagnaður hér í Efstaleitinu. Tveimur dögum síðar ritstýrði ég auka­fréttatíma sem átti að vera hálftími en við vorum í loftinu í  fimm og hálfan klukku­tíma. Þetta var mögnuð útsending þar sem sögulegri, pólitískri atburðarás var sjón­varpað í beinni útsendingu. Kveiks­þátturinn um Samherja­málið 12. nóvember, sem 65% þjóðarinnar horfðu á, markaði einnig tímamót sem flestir þekkja. Ég var ritstjóri Kveiks á þessum tíma og er gríðar­lega stolt af þríeykinu sem vann það erfiða mál sem enn sér ekki fyrir endann á.“

Þetta var mögnuð útsend­ing þar sem sögu­legri, póli­tískri atburða­rás var sjón­varpað í beinni útsend­ingu.

Blaða- og frétta­menn flytja stundum tilfinninga­þrungnar sögur. Hafa viðtöl grætt Rakel?

„Ekki viðtöl sem ég hef sjálf tekið, en ég hef tárast yfir mörgum viðtölum annarra sem hafa snert mig.“

Hvernig er hún svo sem yfirmaður?

„Það er ómögulegt að dæma um það sjálf. Ég er mjög hrein­skilin, stundum of að sumra mati, og heiðar­leiki skiptir mig miklu máli. Ég er kröfuhörð þegar kemur að fagmennsku og vönduðum vinnu­brögðum og sumum finnst ég smámunasöm í gagnrýni um það sem betur má fara. Við erum frekar dugleg að hrósa því sem vel er gert og hvetja okkar fólk til góðra verka.“

Rakel sagði að frétta­stjóra­starfið væri sólarhrings­skuld­binding allt árið um kring og oftar en ekki í ólgusjó. Hvað tekur núna við? „Ekkert sem liggur fyrir á þessari stundu annað en gott uppsafnað orlof. Það er ýmislegt sem kemur til greina, en ekki tímabært að ræða það,“ segir Rakel sem fór upphaf­lega í fjölmiðla þar sem henni fannst blaða- og frétta­manns­starfið mjög áhugavert. „Ég fór eftir mennta­skóla í stjórnmála­fræði sem undir­búning fyrir það. Fyrsta starfið var á Morgun­blaðinu þegar ég var 26 ára og þaðan fór ég í nám í Broadcast Journalism í Boston, því ljósvaka­miðlarnir heilluðu. Ég fór á vinna á RÚV á meðan ég var enn í námi og hef verið hér samfellt síðan. Frétta­manns­starfið er fjöl­breytt, skemmtilegt og lifandi. Það snýst um að rýna samfélagið, spegla það og veita aðhald. Þegar vel gengur og frétta­flutningur er upp á sitt besta þá líður manni vel við dagslok.“ Starfið hefur gefið Rakel mikið, en hefur það tekið eitthvað frá henni? „Álagið er mikið og viðvarandi átök eru lýjandi til lengdar.“

Ég er mjög hrein­skilin, stundum of að sumra mati, og heið­ar­leiki skiptir mig miklu máli.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim