Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

15 bestu rapplög Íslandssögunnar

Cell7, Herra Hnetusmjör og Dóri DNA hafa gert sumt af bestu rapplögum Íslands
Cell7, Herra Hnetu­smjör og Dóri DNA hafa gert sumt af bestu rapp­lögum Íslands

Endalaus straumur af nýjum íslenskum rapplögum koma út í viku hverri en Mannlíf leitaði til sérfræðinga til að finna 15 bestu lögin í Íslands­sögunni.

Það er ekki skortur á íslenskum röppurum árið 2023, ný lög koma út vikulega og virðist ekkert benda til annars en að rapp haldi áfram að vera vinsælasta tónlistar­stefnan á Íslandi næstu ár. En til þess að geta tekist á við fram­tíðina er oft gott að líta til baka á þau lög sem hafa lyft íslenskri rapp­tónlist á hærra stig og gert hana að þeim risa sem hún er í dag. Mannlíf ræddi við þrjá rapp­sérfræðinga til að finna 15 bestu íslensku rapplögin sem hafa verið gerð. Allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa sjálfir búið til rapp þegar þeir voru yngri en hafa nú snúið sér að öðru.

Sérfræðingarnir eru:
Freyr Árnason – Leik­stjóri og handrits­höfundur
Darri Rafn Hólmarsson – Gagna­sérfræðingur
Ingvar Ásmundsson – Lögfræðingur

XXX Rottweilerhundar – Bent nálgast

„Grein um bestu íslensku rapplögin er ekki grein um bestu íslensku rapplögin ef hún inni­heldur ekki Bent nálgast. Arfleifð eða, eftir atvikum, þjóð­söngur.“

Cell7 – City Lights

„Ragna Cell7 hlaut mikla athygli á 10. áratugnum sem meðlimur Subterranean en hvarf af sviðinu að miklu leyti fyrsta áratug 21. aldarinnar en gaf út plötu árið 2013 og aðra 2017. Báðar plöturnar fengu góða dóma og verðlaun en Ragna hefur að sumu leyti staðið fyrir utan hiphop-senuna svokölluðu og ekki fengið jafn mikla virðingu og hún ætti í raun að fá. City Lights er besta lagið hennar. Grípandi viðlag, flott rapp og öðruvísi taktur en íslenskt rapp er þekkt fyrir.“

Afkvæmi Guðanna – Altarisgangan

„Það er af mörgu að taka þegar kemur að Afkvæmum Guðanna en þetta lag er alltaf í ákveðnu uppáhaldi. Hagfræðingurinn hlaupandi, Eiríkur Ásþór Ragnarsson (Eikonomics), með sterkan leik.“

Introbeats ásamt Dóra DNA – Á vökunni

„Þetta sound er með því besta sem ég hef heyrt. Textinn er jafnframt frábær. Gríðar­lega töff lag.“

Skytturnar – Ég geri það sem ég vil

„Geggjað lag af fyrstu rapp­plötunni á íslensku, SP, sem ég rakst á um daginn og eldist fáránlega vel. En þetta lag er bæði fyndið og sniðugt og síðan er þetta bara algjör gluggi inn í einhverja unglinga­stemmningu fyrir 20 árum.“

XXX Rottweilerhundar – Gemmér

„Að öðrum ólöstuðum er Bent besti íslenski rapparinn. Það er staðreynd sem breytist aldrei. Þetta lag sýnir hans bestu hliðar.“

Forgotten Lores – Kapital & Hefnd

„Pólitík og stríð hafa ekki verið sérlega fyrirferðar­mikil yrkisefni í íslensku rappi (þ.e. fyrir utan ýmis lög Erps Eyvindar­sonar). Í Kapital & Hefnd er aftur á móti fjallað um ástand heimsins af svo mikilli fágun yfir þennan ljúfa, djass­skotna takt úr smiðju Intr0beatz að fyrir mér er þetta lag ekkert minna en ódauðlegt. Lagið stenst algerlega tímans tönn þrátt fyrir að vera tveggja áratuga gamalt og ótrúlegt er að hugsa til þess að nú sé ástandið í Palestínu enn verra en þegar það var ort.“

O.N.E. – Move

„O.N.E. var alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér. Eiga mörg frábær lög en þetta lag er líklega fremst meðal jafningja. Skapar gríðar­lega góða stemmningu við hlustun.“

BlazRoca – Má ég koma heim

„Erpur og Rottweiler phenamonið er svo miklu meira og stærra en einhver einstök lög. Þeir komu beisiklí með rokkið og rólið inn í rappið en lagið sem ég ætla sækja er algjör B-hlið á Kóbacabana plötunni. Það er eitthvað myrkur og einhver sann­leikur í þessum texta og síðan er sound-ið á þessu bara eitthvað sem aldrei áður hafði heyrst í íslensku rappi.“

Úlfur Úlfur – Bróðir

„Frábært sound og flott rapp. Gríðar­lega vel gert lag.“

Birnir & Herra Hnetusmjör – Já ég veit

„Ákveðin toppur. Beatið er ruglað, aldamóta Pharrel fílingur með 2018 twisti og Birnir og Hnetan sitja svo vel í þessu lagi. Eitt af þessum lögum sem maður man hvar maður var þegar maður heyrði það fyrst. Myndi segja þetta hið fullkomna lag frá þeim tíma er það var fullkomið jafnvægi á milli popps og rapps í íslensku hip hop senunni.“

Tiny – Óupplýst sakamál

„Tiny er auðvitað stórkost­legur á ensku en sýnir það í þessu lagi að hann er ekki síðri á íslensku. Alvöru lag með alvöru texta. Gæsahúð.“

Herra Hnetusmjör – Jámarh ft. Joe Frazier

„Ef mér væri sleppt af himnum ofan niður í úthverfi Oakland-borgar og ég þyrfti að sannfæra innfædda um ágæti íslensks rapps þá myndi ég líklega leita að þessu lagi – grípandi viðlag, frísk­legur taktur undir áhrifum frá DJ Mustard og Joe Frazier stelur senunni með fjölmörgum sniðugum línum. Þetta lag meikar fullkomið sens eftir nokkra svell­kalda og hinn þungi 808-bassi fær mig undan­tekninga­laust til að dilla mér.“

Introbeats feat. Stjáni Blái og Kötturinn Felix – Ekkert Grín

„Stjáni úr Afkvæmum Guðanna og Diddi Fel úr Forgotten Lores gáfu út nokkur lög saman undir nafninu Stjáni Blái og Kötturinn Felix og þau eru öll frábær en þetta er líklega besta lagið. Það kemur allt saman í þessu lagi. Stórkost­legur taktur frá Introbeats og hugsanlega bestu rímur sem íslenskt rapp hefur heyrt.“

Cheddy Carter – Smoked lamb

„Þetta lag hefur „vibe“ sem grípur mann alveg rosalega. Textinn hnyttinn á köflum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt