Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Vill hlífa Seðlabankastjóra: „Náum engum tökum á verðbólgunni með óraunhæfum kröfum um launahækkun“

Brynjar Níelsson Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir
Brynjar Níelsson Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Brynjar Níelsson tók upp hanskann fyrir Seðla­banka­stjórann í síðustu færslu sinni á samfélags­miðlinum Facebook. Í henni útskýrir hann hvernig fullkomin vanþekking þingmanna í stjórnar­andstöðunni á efnahags­málum hafi birst honum á fundi efnahags- og viðskipta­nefndar:

„Verð­bólgan er nú komin í tveggja stafa tölu. Eins og alltaf er það öðrum að kenna en okkur sjálfum, helst seðla­bankastjóra og fjármála­ráðherra. Á fundi efnahags- og viðskipta­nefndar með seðla­bankastjóra birtist okkur fullkomin vanþekking þingmanna stjórnar­andstöðunnar á efnahags­málum. Því er ástæða til nokkurs hroka af minni hálfu.“

Brynjar segir það lögmáli lúta að ef laun hækki meira en innistæða sé fyrir kyndi það undir verðbólgu. Hann jafnframt bendir á að laun hafi hækkað um 20 prósent síðan síðasti heims­faraldurinn reið yfir og um sjötíu prósent á síðastliðnum níu árum. Eru slíkar launa­hækkanir á almennum vinnu­markaði óþekktar annars staðar í veröldinni, bætir Brynjar við í færslunni.„Að auki fylgdu kröfur um aukin útgjöld ríkis­sjóðs fyrir utan umtals­verðar launa­hækkanir til opinberra starfs­manna, einkum á sveitar­stjórnar­stiginu. Hvort tveggja hefur áhrif á verðbólgu sem öllum ætti að vera ljóst. Viðskipta­halli vegna eyðslu okkur hefur áhrif á verð­bólguna og svo bætist við innflutt verðbólga sem var óhjá­kvæmileg vegna kovíd. Má því ætla að verðbólga ætti að vera enn meiri en raun er,“ útskýrir Brynjar og finnst vert að við lítum öll í eigin barm.„Verð­bólgan nú kemur mest niður á lægst launuðum og ungu fólki sem hefur keypt sína fyrstu eign. Þá lamar það frekari uppbyggingu atvinnu­lífsins. Við náum engum tökum á verð­bólgunni með óraunhæfum kröfum um launa­hækkun og auknum kröfum á frekari útgjöld ríkisins.Lítum í eigin barm og lærum af reynslunni og hættum að djöflast í seðla­bankastjóra sem eingöngu sinnir skyldum sínum,“ ritar Brynjar að lokum.Hér að neðan má sjá færslu Brynjars í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim