Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Guðný María var send á bráðamóttökuna með höfuðkvalir: „Með hjartað yfirfullt af þakklæti“

Guðný María
Guðný María Mynd: Aðsend

Söngkonan og gleði­gjafinn Guðný María Arnþórs­dóttir berst af krafti við erfitt beinmergskrabbamein og gengur baráttan vel. Hún þurfti þó á bráða­móttökuna vegna aukaverkana um helgina.

Sjá einnig: Guðný María með sann­kallaðar gleði­fréttir: „Ekkert í veröldinni getur toppað það“

Guðný María, sem er hvað þekktust fyrir slagara á borð við Akureyrarbeib, Okkar, okkar páskar og Tjilla með þér, skrifaði færslu á Facebook í gær þar sem hún lýsti með sínu lagi heimsókn sinni á bráða­vaktina. Þangað fór hún vegna gríðar­legs haus­verkjar sem reyndist aukaverkun af krabbameins­lyfi sem hún tekur. Guðný María gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færsluna:

„Þessar höfuð­kvalir byrjuðu fyrir alvöru eftir síðasta lyfjakúr. Ég komst ekki í skólann í vikunni og þótt ég fengi mér Panodil, þá gat ég eins étið sokkana mína Í gær gafst ég upp og hringdi upp á Krabbameins­deild, þeir sendu mig á slysa­deildina.

Á biðstofunni talaði maður svo hátt, þá hélt ég um höfuð mér til að verjast hávaðanum. Loks kemur hjúkrunar­fræðingur og biður mig um að fylgja sér inn í sjúkra­stofu. Þar var dimmt og dásamlegasta rúm í allri veröldinni. Ásamt þögninni.Eftir einhverja stund kemur kona og spyr hvort hún eigi ekki að loka glugganum en kaldur stormur gaus þar inn og hvort ég vilji ekki fá sæng. Jú, ég var þakklát, stundum kann Guðný Maria ekki að hugsa um sig frekar en þegar hún var eins árs og fór fyrst að heiman. Ég er að læra það. Þá kom læknir og las allt um lyfin min, höfuð­kvalirnar eru aukaverkun af öðru krabbameins­lyfinu mínu. Hann gerði fleira, honum tókst að útskýra fyrir mér hvernig ég hefði samt komið betur út úr þessum lyfjakúr en síðasta. Stundum treysti ég ekki, en hann fékk mig jafnvel til að brosa og hann brosti.Ég fékk ibúfen í æð og verkurinn hvarf rólega.Guðný María fór heim sem ný kona klukkan 4.30 í nótt eftir ævintýri næturinnar, með hjartað yfirfullt af þakklæti til besta hjúkrunar­fólks i veröldinni á bráða­móttökunni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“