Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Gummi Emil ósáttur við múslima, innflytjendur og „vinstri libba“

Fullyrðir að múslimar beri „enga virðingu fyrir vestrænum konum“

Guðmundur Emil Jóhannsson
Guð­mundur Emil Jóhanns­son Starfar sem einka­þjálf­ari. Mynd: Guðmundur Emil/Facebook

Einka­þjálfarinn og áhrifa­valdur Guðmundur Emil Jóhannsson, oft nefndur Gummi Emil, hefur vakið athygli með færslu á samfélags­miðlum þar sem hann fjallar meðal annars um innflytjendamál, múslima, verðbólgu og íslensk stjórnmál.

Guðmundur deildi þar skjáskoti af fyrri færslu sinni sem hann segir hafa fengið óvenju­mikil viðbrögð. Hann segir viðbrögðin til marks um að viðhorf fólks séu að breytast. Rétt er þó að taka fram að Guðmundur hefur eytt færslunni af samfélags­miðlum en hún var til umræðu í Facebook-hópum Afhjúpum kven­fyrirlitningu, rasisma og almennt hatur á samfélags­miðlum.

„Fólk er að vakna á Íslandi en það eru enn margir stein­sofandi lifandi í afneitun. Það þarf meiriháttar breytingu,“ skrifar Guðmundur og fullyrðir jafnframt að múslimar beri „enga virðingu fyrir vestrænum konum“.

Í færslunni sem Guðmundur deilir gagnrýnir hann meðal annars hversu kostnaðar­samt sé að eignast börn á Íslandi. Hann tengir þá umræðu við innflytjendamál og heldur því fram að útlendingar eignist mörg börn og fái ríflegar bætur og styrki.

Guðmundur beinir einnig spjótum sínum að stjórn­málamönnum og segist telja að engan stjórn­málamann finna sem sé „nógu sterkur“ til að ná tökum á verð­bólgunni. Þá gagnrýnir hann fólk sem hann skilgreinir sem vinstri­sinnað og frjáls­lynt og sakar það meðal annars um að „hata sitt eigið land og sitt fólk“. Vísar hann sérstak­lega í þennan hóp sem „vinstri libba“.

Guðmundur hefur áður vakið athygli í íslenskri fjölmiðla­umfjöllun vegna ummæla sinna og atvika í einkalífi. Hann hefur meðal annars sagt frá því að hafa verið kallaður í skýrslu­töku hjá lögreglu eftir að hann birti mynd af sér með tvær óhlaðnar veiði­byssur.

Hann hefur einnig gert athuga­semdir við úrslit Íslands­móts í fitness fyrra á árinu og haldið því fram að hann hafi verið rændur sigrinum í keppninni.

Þá vakti mál Guðmundar talsverða athygli árið 2024 þegar hann fannst nakinn við Suður­landsveg. Guðmundur greindi sjálfur frá því í kjölfarið að hann hefði neytt ofskynjunar­sveppa fyrir atvikið.

Nýjasta færsla hans hefur nú bæst við þær yfir­lýsingar Guðmundar sem vakið hafa athygli á samfélags­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto