Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Edda Falak lýsti eftir fórnarlömbum þekkts manns – Arnþór úthrópaði Kára Stefánsson og Þóru ofbauð

Miklar sviptingar hafa verið inn stjórnar samtak­anna SÁÁ eftir að Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, fram­bjóðandi til formanns­embættis, dró framboð sitt til baka rétt rúmri klukku­stund fyrir stjórnar­fund þar sem aðalmálið á dagskrá var að kjósa um hvort að hún yrði næsti formaður. Þá sagði hún sig úr stjórn samtak­anna ásamt yfirmanni sínum hjá Íslenskri erfða­greiningu, Kára Stef­ánssyni, en Þóra Kristín starfar sem upplýsinga­fulltrúi fyrir­tækisins.

Mannlíf fjallaði um tilkynningu sem Þóra lét falla á facebook síðu sinni í dag, þar sem hún dró framboð sitt til baka.

Ljóst er að Þóra Kristín gekk að embætti formanns SÁÁ vísu enda höfðu 40 af 48 stjórnar­mönnum skorað á hana að gefa kost á sér til starfsins og því aðeins forms­atriði að klára kosninguna.

Arnþór sendi fyrir­spurn á Þóru Kristínu sem hann sendi jafnframt á alla stjórnar­meðlimi SÁÁ 48 talsins. Mannlíf hefur þennan póst undir höndum en í honum segir:

„Sæl Þóra Kristín

Meðfylgjandi er skjáskot frá í gær 2. febrúar. Konur sem telja sig eiga um sárt að binda vegna ósæmilegrar framkomu einhvers frægðarmennis, munu líklega stíga fram og segja sögu sína. Ef marka má upplýsingarnar á myndinni gætu þolendurnir verið skjólstæðingar SÁÁ. Mér hefur verið sagt að gerandinn sé Kári Stef­ánsson. Getur þú staðfest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?

AJ“

Rétt er að geta þess að mikilvægt er að skilja á milli daglegrar starfsemi SÁÁ, sem gengur sinn vanagang og átakanna innan stjórnarinnar. Eins og stuðnings­yfir­lýsingarnar við Þóru Kristínu bera með sér er stjórn SÁÁ heilt yfir afar samstíga en lítil andspyrnu­hreyfing sem tengist Þórarni Tyrfings­syni, fyrr­verandi yfirlækni og stjórn­anda SÁÁ, hefur valdið miklum usla. Höfuð þeirrar andspyrnu­hreyfingar innan stjórnarinnar eru Arnþór Jónsson, fyrr­verandi formaður SÁÁ, og Björn Logi, sérfræði­læknir og sonur Þórarins.

Ástandið innan stjórnarinnar var þegar afar viðkvæmt útaf stríði SÁÁ við Sjúkra­tryggingar Íslands en stofnunin hefur kært samtökin fyrir 175 milljón króna fjársvik eins og frægt er. Sá sem er á bak við málið innan Sjúkra­trygginga er Ari Matthíasson, fyrrum framkvæmda­stjóri SÁÁ, sem flestir stjórnar­menn telja að sé í áður­nefndri andspyrnu­hreyfingu.

Starf þeirra gert tortryggilegt

Vísbendingar um hvað hefur gengið á síðustu daga  á má lesa út úr færslu Þóru Kristínar á Facebook þar sem að hún dregur framboð sitt tilbaka. Þar segir hún að hafa vitað að því fyrirfram að hálfgert stríðs­ástand ríkti innan samtak­anna. Fljótlega eftir framboð hennar, sem varð formlegt fyrir þremur dögum, hafi þó spjótin beinst að henni.

„Nú er unnið að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einkalífi og þar er af nógu að taka enda hef ég líkt og aðrir sem hafa farið í áfengis­meðferð, lent á vegg í lífinu og gert og sagt hluti sem ég er ekki stolt af. Það er sýnu alvarlegra að fyrr­verandi stjórn­endur SÁÁ eru líka að hlaða í bálköst á samfélags­miðlum fyrir Kára Stef­ánsson yfirmann minn og náinn vin sem hefur einnig gert margt í sinni fortíð undir áhrifum áfengis sem hann hefði betur látið ógert og situr líkt og ég í aðal­stjórn SÁÁ og er löngu hættur að drekka,“ skrifaði Þóra Kristín í yfir­lýsingu sinni.

Sagði hún jafnframt að atlögurnar hafi ekki síst beinst gegn samstarfi hennar og Kára.

„Þá hefur einnig verið reynt að gera það tortryggilegt að ég sem starfs­maður Íslenskrar erfða­greiningar og Kári Stef­ánsson séum að láta til okkar taka í starfi SÁÁ vegna samstarfs við sjúkrahús samtak­anna um rann­sóknir,“ skrifaði fram­bjóðandinn.

Kornið sem fyllti mælinn

Heimildir Mannlífs herma að rógs­herferð andspyrnu­hreyfingarinnar gegn Þóru Kristínu hafi hafist um leið og hún tilkynnti um framboð sitt. Kornið sem fyllti mælinn hafi þó verið tölvu­póstur rétt fyrir hádegi í dag þar sem Arnþór Jónsson áfram­sendi skjáskot af auglýsingu Eddu Falak á samfélags­miðlum þar sem hún óskar eftir fórnar­lömbum þjóð­þekkts manns fyrir hönd konu sem orðið hafi fyrir vændi.

„Meðfylgjandi er skjáskot frá því í dag. Í færslunni segir frá konum sem telja sig eiga um sárt að binda vegna ósæmilegrar framkomu einhvers frægðarmennis, munu líklega stíga fram og segja sögu sína. Ef marka má upplýsingarnar á myndinni gætu þolendurnir verið skjólstæðingar SÁÁ. Mér hefur verið sagt að gerandinn sé Kári Stef­ánsson. Getur þú staðfest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?,“ skrifaði Arnþór í tölvu­pósti sem Mannlíf hefur undir höndum.

Í kjölfar þessa pósts hafi Þóra Kristín hugsað sinn gang og afréð að lokum, rétt fyrir fundinn þar sem kjósa átti hana til formanns, að draga framboð sitt tilbaka.

Draga sig úr stjórn vegna ofbeldishegðunar

Heimildir Mannlífs herma að það ríki mikil reiði innan stjórnar SÁÁ með framgöngu Arnþórs og andspyrnu­hreyfingarinnar. Einn af 48 stjórnar­mönnum SÁÁ er fjölmiðla­maðurinn Frosti Logason sem brást við tíðindunum með því að senda póst, sem Mannlíf hefur undir höndum, á alla stjórnina þar sem hann hjólar í Arnþór.

„Þóra Kristín og Kári Stef­ánsson hafa ákveðið að draga sig alfarið úr stjórn samtak­anna vegna þeirrar ofbeldis­hegðunar sem Arnþór Jónsson og félagar hafa verið að sýna af sér í dag eins og á liðnum árum. Það skal tekið hér fram að Edda Falak hefur staðfest það við Arnþór að ekki sé um Kára Stef­ánsson að ræða í þessum orðrómi um vændis­kaup sem hún var að fiska eftir á samfélags­miðlum. Eftir stendur að ítrekað ofbeldi Arnþórs og félaga heldur áfram að eyði­leggja fyrir okkar ágætu samtökum og það er miður,“ skrifar Frosti í póstinum til stjórnar­meðlima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra