Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Aftenposten Innsikt biður Samherja afsökunar: „Ætlar Blaðamannafélagið ekki að gera það sama?“

Páll Vilhjálmsson er afar umdeildur bloggari
Páll Vil­hjálms­son er afar umdeildur blogg­ari

Norskt frétta­tímarit birti afsökunar­beiðni til Samherja vegna umfjöllunar sem birtist í blaðinu í febrúar. Áfellis­dómur yfir blaða­manninum Lasse Skytt. Páll Vilhjálmsson spyr hvort Blaðamanna­félag Íslands ætli að biðjast afsökunar en á press.is birtist umfjöllun um grein eftir Skytt þar sem Samherja­málið var meðal annars rætt.

Í mars­útgáfu norska frétta­tímaritsins Af­ten­posten Innsikt, birtist afsökunar­beiðni blaðsins vegna greinar sem birtist þar í febrúar. Greinin fjallaði um spillingu á Íslandi og var skrifað af sjálfstætt starfandi blaða­manninum Lasse Skytt. Mbl segir frá málinu en þar beðist afsökunar á ýmsum vanköntum í greininni og vegna þess að Samherja var ekki gefinn kostur á að svara þeim ásökunum sem fram komu í greininni.

Páll Vilhjálmsson, framhalds­skóla­kennari og Mogga­bloggari spyr í nýrri blogg­færslu hvort Blaðamanna­félag Íslands ætli að biðjast afsökunar. Á hverju gætu einhverjir velt fyrir sér en ástæðan er sú að á vefsíðu félagsins, press.is birtist umfjöllun í febrúar um grein eftir Lasse Skytt úr danska blaðinu Journalisten en þar er farið yfir ástæðurnar fyrir því að Ísland datt af toppi fjölmiðla­frelsis­lista Blaða­manna án landamæra. Í greininni er meðal annars rætt við Sigríði Dögg Auðuns­dóttur, formann Blaðamanna­félags Íslands og Þórð Snæ Júlíussonar, annars tveggja ritstjóra Heimildarinnar en Þórður og Arnar Þór Ing­ólfs­son blaða­maður standa nú í mála­ferlum við Pál Vilhjálmsson vegna meintra meiðyrða.

Páll segir í færslu sinni að Þórður Snær hafi sagt eftir­farandi orð (og þannig „skáldað“) í grein Journalisten sem svo BÍ fjallaði um á vef sínum: Hann [Þórður Snær} og þrír aðrir blaðamenn fengu skyndi­heimsókn í Reykjavík frá hópi lögreglu­manna. Þeim var ekið til Akureyrar, sjávar­byggðar á Norður­landi þar sem Samherji er með höfuð­stöðvar.

Þetta er hins vegar ekki rétt. Í lauslegri þýðingu segir í Journalisten: Hann og þrír aðrir blaðamenn fengu skyndi­heimsókn í Reykjavík frá hópi lögreglu­manna. Þeir höfðu keyrt til höfuð­borgarinnar frá Akureyri í norðri – fiskibæjar þar sem Samherji er með höfuð­stöðvar.

Þá bendir Páll á að í grein Blaðamanna­félagsins standi: Samherja­málið er rifjað upp, og sú ákvörðun lögreglu­stjórans á Norður­landi eystra að hefja sakamála­rannsókn gegn fjórum blaða­mönnum í tengslum við frétta­flutning af einum anga Samherja­málsins.

Segir framhalds­skóla­kennarinn að þetta sé akkurat eitt af því sem Aftenposten Innsikt hafi beðist afsökunar á: Yf­ir­heyrsla ís­lenskra blaða­manna hjá lög­regl­unni á Norður­landi eystra hafi „ekki tengst um­fjöll­un þess­ara blaða­manna um um­rætt mál [þ.e. Namibíu­málið] og kem­ur þannig mál­inu ekki við“.

Bætir hann svo við: „Nú þegar fagmenn sem kunna blaða­mennsku, ritstjórn Innsikt/Aftenposten, hafa beðist afsökunar ætlar Blaðamanna­félag Íslands ekki að gera það sama?“

Mannlíf heyrði í Sigríði Dögg Auðuns­dóttur og spurði hana hvort henni fyndist Blaðamanna­félagið þurfa að biðjast afsökunar á að fjalla um grein Skytt í Journalisten eftir að Aftenposten Innsikt baðst afsökunar á skrifum Lasse Skytt í þeirra blað um sama mál. Sigríður hafði ekki heyrt af þessu en eftir að hafa kynnt sér málið benti hún á að um tvær mismun­andi greinar væru að ræða. Því hafi BÍ ekkert til að biðjast afsökunar á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim