„Ég mun kynna þetta fyrir félagsmönnum og mælast til þess þau til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni og samþykki miðlunartillöguna,“ segir Halldór Benjamín Þorgeirsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, í viðtali við Mannlíf rétt áður en hann gekk til fundar með félagsmönnum sínum, þar sem hann mun kynna þeim nýjar miðlunartillögur sem Ástráður Haraldsson, settur ríkissáttasemjari, gaf út rétt í þessu.
Eins og fram kom á blaðamannafundi með ríkissáttasemjara eru lagðar fram tvær megin breytingar en fær fela í sér breytingu á starfsheiti félagsmanna Eflingar sem starfa á gistihúsum.
Aðspurður um breytt starfsheiti innan raða starfsfólksins útskýrir Halldór Benjamín að honum sé ekki kleift að tjá sig um málið að svo stöddu en að: „Það er bara til hægðarauka fyrir framkvæmd samningsins.“
Ríkissáttasemjari lagði til breytingar á launaflokki hjá einum hópi hjá starfsmönnum Eflingar sem starfa á gistihúsum. Í meginatriðum myndi sá hópur færast úr fimmta launaflokki yfir í sjötta launaflokk og myndi það jafngilda 0,58 prósent launahækkun.
Aðspurður segir Hallór Benjamín: „Miðlunartillagan er launatafla SGS félaganna og það er ein breyting er varðar einn tiltekinn hóp Eflingarfólks.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir