Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Auður gerir upp róstusamt lífshlaup sitt: „Það var mikið and­legt og lík­am­legt of­beldi“

Mynd / Skjáskot.
Mynd / Skjáskot.

Auður Vil­hjálms­dótt­ir – 37 ára, tveggja barna móðir úr Breið­holti – er nýj­asti gestur hlaðvarps­ins Sterk sam­an.

Auður var mjög ung þegar hún byrjaði í neyslu; flúði slæma líðan sína og heim­ilisaðstæður, en hún var ekki nema 13 ára þegar hún drakk sig dauða­drukkna og endaði æl­andi í minnis­leysi; þó fann hún samt sem áður að þetta vildi hún gera aft­ur og það sem sem fyrst.

Kemur fram í spjallinu að for­eldr­ar Auðar voru mjög ung þegar þau áttu hana; móðir henn­ar var orðin þriggja barna móðir aðeins 21 árs gömul:

„Ég veit að þau gerðu sitt besta, en það var al­gjör heragi hjá pabba, mikið and­legt of­beldi og líka lík­am­legt.“

Auði gekk ekki vel í skóla og var hljóðlátt barn sem lítið fór fyr­ir:

„Ég ákvað þegar ég varð ung­ling­ur að láta ekki ganga yfir mig leng­ur og fór í upp­reisn. Það var alltaf allt brjálað heima þar til mér var hent út, 14 ára gam­alli.“

Auður leitaði þá á náðir Rauða kross­ins eft­ir að hafa gist hjá vin­konu, en ef það stóð illa á þar þurfti hún að sofa úti, eða þá í gr­en­um þar sem fólk í harðri neyslu hélt til.

Auður var nítján ára þegar hún fór í sína fyrstu meðferð eft­ir nokk­ur stór áföll; en á þeim tíma vissi hún ekkert hvað meðferð var, en það hljómaði vel að vera ör­ugg; sofa í rúmi og fá að borða reglulega. Auður fór í þrjár meðferðir á stutt­um tíma og seg­ir frá því að pabbi henn­ar hafi komið til henn­ar stuttu áður en hún fór í fyrstu meðferðina; þá hafði hún ekki talað við for­eldra sína í langan tíma:

„Hann sagði að þau, mamma og pabbi, vildu vita af mér og ég upp­lifði að ein­hverj­um þætti vænt um mig eða að þau væru ekki búin að gleyma mér,“ seg­ir hún.

Auður hef­ur verið í bata frá vímu­efna­vanda í ein 15 ár og seg­ist eiga Dyngj­unni (áfanga­heimili fyrir konur, skipulagt að þörfum þeirra sem eru að koma úr áfengis og vímuefna­meðferð, þeim veittur allur stuðningur til að takast á við heilbrigt líferni sem tók til starfa árið 1988 og hefur starfað óslitið síðan) mikið að þakka.

Í Dyngjunni bjó Auður í tvö ár; sem lögðu grunninn að því lífi sem hún lif­ir í dag:

„Ég var alltaf ein með strák­un­um og þeir pössuðu mig en samt brutu þeir auðvitað oft á mér líka. Ég hélt samt að ég gæti aldrei eign­ast vin­kon­ur, en í Dyngj­unni kynnt­ist ég dá­sam­leg­um stelp­um og eignaðist vin­kon­ur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“