Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Guðni skaut drykkjufélaga sinn til bana – Kona hans hringdi stuttu síðar í lögregluna

Höfn í Hornafirði
Höfn í Horna­firði Mynd: south.is (átt hefur verið við myndina)

Þeir Stefán Egilsson og Guðni Óskarsson sátu við drykkju eitt laugardags­kvöld heima hjá Guðna á Höfn í Horna­firði. Snemma morguninn eftir sinnaðist mönnunum og henti Guðni Stefáni út. Stuttu síðar hlóð Guðni hagla­byssu sína og skaut í átt að Stefáni. Annað skotið hæfði hann í brjóstið og er talið að Stefán hafi látist samstundis. Árið var 1973.

Morgun­blaðið sagði svo frá morðinu á Stefáni Egilssyni þann 30. janúar 1973:

Höfn í Horna­firði: 33 ára maður skotinn til bana 41 árs drykkju­félagi hans skaut hann með hagla­byssu, eftir að þeim hafði sinnazt



33 ÁRA gamall maður, Stefán Egilsson, til heimilis að Volaseli í Lóni í Austur-Skafta­fellssýslu, var skotinn til bana á Höfn í Horna­firði um kl. 07 á sunnudags­morguninn. Gerðist þetta í húsinu nr. 23 við Miðtún, á heimili þess manns, er verknaðinn framdi, Guðna Óskars­sonar. Höfðu mennirnir setið þar að drykkju alla nóttina, en sinnazt um morguninn, með þessum afleiðingum. Guðni var síðdegis á sunnudag fluttur í flugvél frá Horna­firði til Reykja­víkur og situr hann nú í gæzluvarðhaldi í Hegningar­húsinu í Reykjavík. Hefur hann verið úrskurðaður í allt að 90 daga gæzluvarðhald á meðan rannsókn málsins fer fram, og gert að sæta geðrannsókn. Var hann yfir­heyrður í fyrradag og í gær og hefur játað á sig verknaðinn. Segist hann hafa verið mikið drukkinn, er þetta gerðist. — Sýslu­maðurinn í Skafta­fellssýslum, Einar Oddsson, stjórnar rannsókn málsins.

Stefán Egilsson var aðeins 33 ára að aldri er hann lést

Mennirnir tveir þekktust vel og höfðu setið að drykkju alla aðfarar­nótt sunnudags á heimili Guðna. Er á leið urðu þeir ósáttir, svo að til átaka kom á milli þeirra, og segist Guðni hafa hent gesti sínum út. Að því búnu tók hann hagla­byssu nr. 12, sem hann átti, hlóð hana og skaut tveimur skotum úr henni, að því er hann sjálfur segir. Virðist annað skotið hafa hæft Stefán í brjóstið svo að hann hlaut bana af. Er talið að hann hafi iátizt samstundis. Kona skot­mannsins hringdi þegar á lögregluna og sagði frá hvað gerzt hefði. Kom Guðni síðan sjáifiur í símann og sagðist hafa skotið mann til bana. Lögreglan kom strax á staðinn og handtók hann og hafði í gæzlu, þar til hann var fluttur flugleiðis til Reykja­víkur síðdegis samia dag. — Einar sýslu­maður, fer í dag austur til Horna­fjarðar til að halda áfram rannsókn málsins. Stefán Egilsson var einhleypur. Hann hafði starfað að bifreiða­viðgerðum. Guðni Óskarsson er 41 árs fjölskyidumaður, bifreiða­stjóri að atvinnu.

Guðni var fundinn sekur um morðið í nóvember sama ár en hann viðurkenndi alltaf brotið. Hlaut hann níu ára dóm fyrir glæpinn. Morgun­blaðið fjallaði um dóminn í blaði sínu:

Dæmdur í níu ára fangelsi fyrir morð

Í GÆR var kveðinn upp í Sakadómi Skafta­fellssýslu dómur í máli Guðna Óskars­sonar bifreiða­stjóri, Miðtúni 23, Höfn, Horna­firði, en hann hafði verið ákærður fyrir að hafa myrt Stefán Egilsson frá Volaseli í Lóni á heimili sínu á Horna­firði að morgni sunnu­dagsins 28. jan sl. Var Guðni dæmdur í níu ára fangelsi og til greiðslu alls sakar­kostnaðar, þ.á.m. 90 þús. kr. málsvarnar­launa til Jónasar A. Aðal­steinssonar hrl., og 90 þús. kr. málssóknar­kostnaðar til ríkis­sjóðs. Gæzluvarðhaldsvist Guðna frá 28. jan sl. kemur til frádráttar fangelsuninni. Guðni var dæmdur skv. 211. grein hegningar­laga. sem svo hljóðar: Hver, sem sviptir annan mann lífi, skal sæta fangelsi, ekki skemur en 5 ár, eða ævilangt. Dóminn kvað upp Einar Oddsson, sýslu­maður. Við rannsókn málsins á sínum tíma játaði Guðni á sig verknaðinn. Þeir Stefán höfðu þekkzt vel og sátu heima hjá Guðna að drykkju aðfarar­nótt sunnu­dagsins. Er á leið urðu þeir ósáttir. svo að til átaka kom á milli þeirra, og kvaðst Guðni hafa hent gesti sínum út. Að því búnu tók hann hagla­byssu, sem hann átti, hlóð hana og skaut tveimur skotum á eftir Stefáni. Beið Stefán samstundis bana af, er annað skotið hæfði hann. — Var Guðni hand­tekinn á heimili sínu skömmu síðar, án mótþróa og hefur hann setið í gæzluvarðhaldi síðan. Hann er rúmlega fertugur, fjölskyldu­maður. Stefán Egilsson var 33 ára að aldri, einhleypur. Hann hafði starfað við bifreiða­viðgerðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Parið var í hávaðarifildi að sögn lögreglu
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu konunnar um tvær milljónir króna í miskabætur þótt ökumaðurinn hefði sýnt af sér gáleysi.

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný