Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sigmar í skuldavanda

Sigmar er aðaleigandi Minigarðarins
Sigmar er aðal­eig­andi Mini­garð­ar­ins

Athafna­maðurinn Sig­mar Vil­hjálms­son, Simmi Vill,  er að glíma við háar skuldir sem hvíla á fyrir­tækjum hans. Hann lýsti því í hlaðvarpi sínu, 70 mínútur, að Covidfaraldurinn hefði sligað fyrirtæki hans sem starfar í veitinga­geiranum. Hann segir að sumir fari þá leið að skipta um kenni­tölur en sjálfur hafi hann kosið að borga skuldir sína og því selt raðhús sitt við Kvísl­artungu í Mos­fells­bæ til þess umdeilda leigu­fé­lags, Ölmu. Það fylgir sögunni að hann leigi hús sitt í tvö ár og hafi síðan möguleika á því að kaupa aftur.

Sigmar hefur verið mikið til umræðu í fjöl­miðlum vegna sinna mála. Það flaug hátt þegar hann sagðist hafa ákveðið að taka upp bíllausan lífsstíl en lét þess þó ógetið að hann hafði verið sviptur ökuréttindum. Hann gekkst svo fúslega við því í útvarps­viðtali að hann hefði fengið hjálp yfirvalda við að komast á hjólið.

Að frátöldu reiðhjólamálnu dást margir að Sigmari fyrir þá hreinskilni að gangast við sínum málum og grípa til svo sársauka­fullra aðgerða að selja heimili sitt. Hann segist einfald­lega standa við skuldir sínar og ekki taka þátt í þeirri þjóðar­íþrótt að skipta um kennitölu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Slúður