Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Elísabet II. heillaðist af Íslandi – Gaf sig á tal við unga sem aldna

Glæsilegir þjóðarleiðtogar
Glæsi­legir þjóð­ar­leið­togar

Elísabet II. Englands­drottning heimsótti Ísland ásamt Filippusi eigin­manni sínum árið 1990. Heillaði drottningin smávaxna landann upp úr skónum og þóttu þau hjónin mjög alþýðleg. Vigdís Finnboga­dóttir forseti tók vel á móti hjónunum en hér á landi skoðuðu þau meðal annars íslensku handritin, málverk eftir íslenska málara og hrossabú, svo eitthvað sé nefnt.

Daman fyrst.

Alþýðu­blaðið skrifaði meðal annarra blaða um heimsókn Elísabetar og Filippusar:

Drottningin og hertoginn:

Alþýðleg stórmenni í Íslands­heimsókn

Elísabet II. Englands­drottning og Filippus hertogi komu blaða­manni mjög alþýlega fyrir sjónir er hann hitti þau í breska sendi­ráðinu í lokuðu hófi að aflokinni heimsókn þeirra í Árna­stofnun. Þar höfðu hátignin fengið að hand­fjatla hinar dýrmætu eignir okkar Íslendinga, handritin, sem loks var samþykkt að skyldu til Íslands árið 1961. Í kjölfar þess sagði drottning eitthvað á þessa leið við blaðamann, sem tjáði henni fyrst að hún skrifaði fyrir blað: „hvernig ætli dagblöðin muni lita út er þau ná aldri íslensku hand­ritanna?“ Blaða­maður svaraði þá að bragði að þau yrðu sennilega gul. Þá brosti drottning sínu tignar­lega brosi og svarði: „Já, líklega.“ Drottning kvaðst mjög ánægð með móttöku Íslendinganna.

Glæsi­legir þjóð­ar­leið­togar

Í þessu boði gerði drottning sér far um að tala við fjölmiðla­fólkið og Filippus skemmti sér hið besta enda augljós­lega húmoristi og léttir örugglega oft andrúms­loftið í svona heim­sóknum.

Andstæður klæðnaður þjóðarleiðtoganna

Vigdís forseti og Elísabet íklæddust andstæðum náttúru­litum. Drottningin var í hágrænni kápu og innundir sást glitta í hvítan kjól með grænum laufum, á höfðinu bar hún barða­lítinn hvítan hatt með svarti líningu og grænu blómi í stíl við kápuna. Skórnir voru svartir og háglans­andi og veskið í stíl. Vigdís, hins vegar, var í skærgulri sumar­dragt með svartan prinsessu­hatt og í svörtum topp. Filippus drottningar­maður var í svargráum jakka­fötum með rautt munstrað bindi. Vigdís fylgdi drottningu og hertoganum eftir framan af degi. Eftir hádegis­verðar­boðið fóru þau í Listasafn Íslands og skoðuðu þar verk eftir íslenska málara. Elísabet var undir leiðsögn Beru Nordal, forstöðu­manns Lista­safnsins, og virtist líka myndir okkar lista­manna vel. Sérstak­lega virtist drottning staldra við gömlu meistaranna, enda hafði sá áhugi hennar komið

áður í ljós er haldin var sýning á íslenskri list í London á dögunum. Skoðun á verkunum fór nokkuð fram yfir tilætlaðan tíma. Að heim­sókninni í Lista­safnið lokinni gengu Elísabet og Vigdís í farar­broddi eftir Fríkirkju­veginum þar sem fjöldi manns, ekki síst barna, hafði safnast saman með íslenska og breska fánann til að fagna drottningu og hertoganum. Fólk var prúðbúið og börnin lífguðu upp á bæinn með litríkum klæðnaði sínum. Drottningin gaf sig á tal við fjölda manns, jafnt unga sem aldna sem ýmist skildu eða ekki enska tungu. En allir gerðu sitt besta. Mikið var klappað fyrir drottningu og hertoganum og greinileg hátíðar­stemming ríkti á þessum bjarta mánudegi. Og eins og áður segir héldu drottning og hertogi í Árna­stofnun til að skoða merkileg íslensk handrit undir leiðsögn Jónasar Krisjánssonar forstöðu­manns Árna­stofnunnar.

Jónas fræðir Elísa­betu um hand­ritin

Fallbyssu­skothríð

Þegar drottning kom að snekkju sinni var 21 fall­byssuskoti hleypt af til heiðurs henni. í Brittaníu hélt drottning og hertoginn síðdegisboð fyrir erlenda sendimenn og í gærkvöld hélt forseti Íslands kvöldverðaboð á Hótel Sögu. Í dag mun drottning heimsækja hrossa­búið að Dal, þar sem ekki er talið ólíklegt að hún skelli sér á bak, og síðan liggur leiðin til Nesja­valla. Um hádegi halda drottning og hertoginn til Þingvalla þar sem þau skoða sig um og snæða hádegis­verð í boði forsetisráðherra í Þingvallabæ. Að því loknu verður Þingvalla­kirkja skoðuð. Gróður­setning trjáa verður við Kárastaði. Klukkan 16.00 verður móttaka borgar­stjóra­hjónanna við Höfða og um kvöldið heldur drottning kvöldverðarboð um borð í Brittaníu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum