Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Amorim látinn taka pokann sinn

Fyrr­ver­andi leik­maður Man. Utd. þjálfar út tíma­bilið

Ruben Amorim
Ruben Amorim Amorim hefur tekið pok­ann sinn Mynd: AJ REYNOLDS / GETTY IMAGES VIA AFP

Manchester United hefur látið Ruben Amorim taka pok­ann sinn. David Ornstein hjá The Athletic greindi fyrst frá ákvörð­un­inni og félagið stað­festi hana síðar um morg­un­inn, klukkan 10:08 en fot­bolti.net sagði frá því fyrst íslenskra miðla.

Amorim hafði stýrt lið­inu í rúm­lega ár, eða í 14 mán­uði, eftir að hann kom til félags­ins frá portú­galska lið­inu Sporting og tók við starfi Erik ten Hag. Hann átti fund með Jason Wilcox og Omar Berrada fyrr í dag þar sem honum var til­kynnt um brott­rekst­ur­inn.

Samkvæmt Ornstein mun Darren Fletcher, fyrr­ver­andi leik­maður Manchester United, taka við stjórn liðs­ins tíma­bundið. Talið er ólík­legt að félagið ráði nýjan knatt­spyrnu­stjóra til fram­búðar fyrr en næsta sumar. Fletcher hefur hingað til starfað sem þjálf­ari U18 liðs félags­ins.

Árangur United undir stjórn Amorim var undir vænt­ingum og sig­ur­hlut­fallið fór ekki yfir 40 pró­sent. Eftir jafn­tefli gegn Leeds í gær hélt Amorim ræðu þar sem hann lagði áherslu á að hann hefði verið ráð­inn sem knatt­spyrnu­stjóri félags­ins, en ekki ein­ungis sem þjálf­ari liðs­ins. Heim­ildir herma að þau ummæli hafi ekki þótt heppi­leg hjá for­ráða­mönnum United.

Manchester United er nú í 6. sæti úrvals­deild­ar­innar með 31 stig að loknum 20 leikjum. Á síð­asta tíma­bili end­aði liðið í 15. sæti og laut í lægra haldi í úrslita­leik Evr­ópu­deild­ar­innar.

Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir að stjórn­endur telji ákvörð­un­ina rétta við þessar aðstæður og að hún eigi að auka líkur á sem bestum árangri liðs­ins í deild­inni þegar líður á vorið.

Darren Fletcher mun stýra lið­inu í næsta leik gegn Burnley.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Sport

Nærmynd

Hver er Theodór Elmar?

Tíu árum eftir árangur Íslands á EM 2016 rifjar Mannlíf upp feril Theodórs Elmars Bjarnasonar, eins af leikmönnum liðsins.

Kristian Nökkvi kemur inn í lands­liðs­hóp­inn

Átján ára knatt­spyrnu­maður lést eftir höf­uð­högg í miðjum leik

Brasil­ísk knatt­spyrnu­fé­lög leita til lög­reglu eftir slags­mál í leik U20-liða kvenna

Helga Margrét vill breyta heim­inum fyrir íslenskar íþrótta­konur

Mark­vörð­ur­inn í áfalli eftir dauðs­fallið