Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Jakob Bjarnar um kulnun: „Þær forðuðust að nefna leiða og leti sem hugsanlega ástæðu“

Jakob Bjarnar Grétarsson.
Jakob Bjarnar Grét­ars­son.

Blaða­maðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson tjáir sig um kulnun í starfi á Facebook-síðu sinni.

„Ég hef stundum furðað mig á gríðarlegri aukningu þess sem kallast kulnun í starfi. Svo rammt hefur kveðið að umræðu um þessa til þess að gera nýju uppgötvun að undan­förnu að ég hef sjálfur látið mér detta í hug að ég sé að glíma við kulnun. Enda mjög áhrifa­gjarn.“

Hann bætir því við að „nú voru þrjár konur í sjón­varpinu að kynna niður­stöðu nýrrar könnunar sem leiðir í ljós að afar lítill hluti sem telur sig botn­frosinn er raun­verulega með hina svokölluðu kulnun. Þær ræddu þetta fram og til baka, eitt spurningar­merki í framan og svolítið eins og köttur í kringum heitan graut.“

Jakob segir að „þær forðuðust samvisku­samlega að nefna leiða og leti sem hugsanlega ástæðu heldur ræddu undrandi að andlegir kvillar óútskýrðir gætu hugsanlega skýrt að svo margir teldu sig ranglega þjakaða af kulnun. Og tæptu ekki svo mikið sem á helstu breytingunni sem er stóraukin þáttaka kvenna á vinnu­markaði.“

Hann nefnir að endingu að „þetta er kannski ekki alveg eins skemmtilegt og eftirsóknar­vert að vera launa­þræll og látið hefur verið í veðri vaka samhliða þeirri miklu þjóðfélags­breytingu?

Bara svo það sé sagt þá hef ég gegnt fjölda starfa á mínum ferli og mér hefur oft leiðst í vinnunni, alveg óbærilega. Ég hélt bara að það fylgdi með í kaupunum — sammannleg reynsla launa­þrælsins og þetta væri nokkuð sem óþarft væri að hafa orð á sérstak­lega. Hvað þá að það atriði þyrfti að kanna sérstak­lega og halda um námskeið?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim