Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ánægja með kjörsókn en fólk enn í sárum

Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands.
Guðlaug Líney Jóhanns­dóttir, for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands.

Félags­menn í Flugfreyju­félagi Íslands samþykktu fyrr í dag kjara­samning milli félagsins við Icelandair. Formaður félagsins segir að ánægja sé með góða kjörsókn en búið sé að skaða það traust sem ríki á milli starfs­fólks og atvinnu­rekenda. 

„Við erum fyrst og fremst ánægð með mjög góða kjörsókn. Það er nokkuð ljóst að meirihluti félags­manna er sammála okkur í því að til að breyta stöðunni þurfti að ganga til samninga,“ segir Guðlaug Líney Jóhanns­dóttir, formaður Flugfreyju­félagi Íslands, í samtali við Mannlíf, eftir að félagið samþykkti fyrr í dag kjara­samning við Icelandair. Alls kusu 88 prósent félags­manna um samninginn og þar af sögðu 83,5 prósent já en 13,42 prósent sögðu nei. Þrjú prósent kjörseðla voru auðir.

Þegar Guðlaug Líney er spurð hvernig andinn hafi verið á fundinum í dag dregur hún sig við svarið. „Það er nokkuð ljóst að búið er að skaða það traust sem ríkir á milli atvinnu­rekenda og starfs­fólks. Fólk er auðvitað enn í sárum eftir 17. júlí þegar öllum var sagt,“ segir hún hrein­skilin. „Icelandair setti líka samstarfs­félaga okkar, flugmenn, í mjög vonda og óþægilega stöðu þegar fyrir­tækið ætlaðist til þess að þeir sinntu okkur störfum. Okkur fannst vont að þeir skyldu vera settir í þá stöðu af Icelandair. Sem betur fer varð ekkert úr því.

„Það er nokkuð ljóst að búið er að skaða það traust sem ríkir á milli atvinnu­rek­enda og starfs­fólks.“

Með því að samþykkja þennan samning erum við hins vegar að leggjast á árar með Icelandair að koma félaginu upp úr þessum hremmingum sem það hefur verið í,“ bendir hún á, „og gæta þess jafnframt að við höfum eitthvað að segja um okkar kaup og kjör til frambúðar.“

Nú hefur Mannlíf heimildir fyrir því að innan félagsins séu áhyggjur af því að félags­menn verði ekki ráðnir aftur út frá starfs­aldri, eins og tíðkast hefur. Hefurðu heyrt eitthvað um það? „Nei, ég hef ekki heyrt um það frá Icelandair,“ segir Guðlaug Líney. „Það hefur tíðkast um áraraðir að þeir sem eru með hæstan starfs­aldur komi inn, ég vona að svo verði áfram.“

Hver eru þá næstu skref? „Ja, nú þurfum við að fá upplýsingar um áhafna­þörf. Ég vonast til að fá upplýsingar um það á næstu dögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim