Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sögulegar sættir konungsfjölskyldunnar mögulegar – Karl vill hitta barnabörnin

Karl III Englands­konungur hyggst bjóða Harrý og Meghan í 75 ára afmæli sitt í nóvember. Að sögn sérfræðings í konungs­fjöl­skyldunni er ástæðan sú að hann vill loksins fá að sjá barnabörn sín. 

Karl konungur vill fá að knúsa loksins barnabörn sín, Boga og Lilju Betu, í fyrsta skiptið, þegar hann á afmæli í nóbember, samkvæmt sérfræðingi í konungs­fjöl­skyldunni bresku.

„Karl væri til í að hafa börn Harrý og Meghan í veislunni,“ sagði ævisagnar­ritari konungs­fjöl­skyldunnar, Angela Levin, við Sun. „Ef að Harrý og Meghan vilja koma með afsökun [innskot blaða­manns: fyrir að komast ekki] er það þeirra ákvörðun.“

Andrúms­loftið hefur verið ansi þungt á milli Harrý og frú og konungs­fjöl­skylduna eftir að prinsinn rauðhærði gaf út ævisögu sína, Spare en þar kastaði hann ýmsum sprengjum á Buckingham-höll ef svo má að orði komast. Af þeim sökum eiga börnin hans tvö enn eftir að hitta afa sinn.

Levin heldur því þó fram að parið, sem býr í Montecito, í Kaliforníu, muni einnig vilja mæta til Bretlands í afmælis­veislu og bætti við að hún sjái ekki ástæðu fyrir því að Markle ætti ekki að fá boð í veisluna líka.

Fram kemur í frétt The New York Post er það þó enn óvíst hvort af endur­fundunum verður, sérstak­lega í ljósi þess að Markle mætti ekki í krýningu Karls í maí. Harrý mætti en heimsókn hans var eins stutt og hugsast gat en þetta var í fyrsta sinn sem hann hitti föður sinn eftir að hann gaf út ævisöguna eldfimu í janúar á þessu ári.

Í krýningunni var hertoginn snupraður við sæta­skipan en hann var færður í þriðju röð, á milli Evgeníu prinsessu og eigin­manns hennar, Jack Brooksbank, og Alexöndru prinsessu. Þá var parið einnig snuprað um boð í sérstakan hitting konungs­fjöl­skyldunnar til að minnast þess að eitt ár var liðin frá andláti Elísabetar Englands­drottningar, sem verður haldinn þann 8. september í Balmoral kastalanum, þrátt fyrir að þau verði í Evrópu um svipað leiti.

Hið útskúfaða par munu lenda í Düsseldorf, þýska­landi, aðeins 24 klukku­stundum eftir að konungs­fjölskyldan hittist í Balmoral en samkvæmt heimildum hefur „enginn sett sig í samband við þau [innskot blaða­manns: vegna hittingsins]“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt