Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Guðrún verður fyrir netníði eftir ósk um fjárhagsaðstoð: „Búið að taka mikið á mig og fjölskylduna“

Flestir landsmenn hafa fundið fyrir hækkuðu verði neyslu­vöru, leigu og bensíns. Fjöldi barna lifir undir fátæktar­mörkum og skortur er á úrræðum fyrir þennan hóp.

Guðrún Ósk er öryrki og einstæð móðir þriggja barna. Þegar seðlar voru af skornum skammti og allt annað brást, leitaði hún á náðir samfélags­miðla. Hún setti færslu inn á Facebook þar sem hún óskaði eftir aðstoð. „Þetta var eina leiðin, samkvæmt kirkjunni er ég of tekjuhá. Sérstakar húsaleigu­bætur í Reykja­nesbæ eru 4000 kall, það er varla fyrir einum poka í Bónus,“ sagði Guðrún í samtali við Mannlíf.

Nokkrir veittu Guðrúnu hjálp og náði hún endum saman út mánuðinn. Ekki voru allir tilbúnir að láta frá sér pening skilirðislaust og fékk hún þónokkur skilaboð þar sem menn buðu henni pening fyrir kynlífs­þjónustu, einhverjir voru tilbúnir að borga henni fyrir ástar­samband.

Fljótt fór Guðrún að sitja undir ásökunum, bæði á Facebook og Twitter. „Ég er búin að fá allskonar yfir mig. Ársgömul mynd sem tekin var í Sky Lagoon, af hverju ég ætti að geta farið í Sky Lagoon. Ég fékk þetta í þrítugsafmælis­gjöf. Ég má ekki ganga í neinu, ég er hrædd við að fara í Nike föt. Ég fékk Micheal Kors tösku í jólagjöf frá frænku minni, ég er hrædd að sjást með hana.“

Fyrir nokkrum dögum setti Guðrún inn færslu í hópinn Tenerife Tips á Facebook. Þar spyr hún ráða, hvar sé hægt að kaupa verkjalyf fyrir börn og hvort verslunina Primark sé að finna á Tenerife. Hún var þó fljót að taka fram í ummælum að hún væri ekki á leið í utan­landsferð heldur ætlaði hún að fá kunningja til að kaupa fyrir sig. Twitter notendur tóku margir þátt í umræðum, þar sem skjáskot var sett af færslu Guðrúnar, án þess þó að ummælin væru höfð með.

Arnar Arin­bjarnarson er einn þeirra sem deildu færslu Guðrúnar en hann segist hafa látið hana hafa pening. Hann merkir þar annan mann sem styrkti Guðrúnu. „Við @ronniturbogonni erum aumingja­góðir og gáfum stúlku í neyð smá aur. Hún blokkaði okkur í kjölfarið. Við og aðrir sem sáu aumur á henni vorum að fjármagna ferð hennar til Tenerife! Skilgreiningin á siðblindu?,“ skrifar Arnar og bætir við, „Þessi kona er búin að rústa því að velviljað fólk hjálpi fólki í neyð. Hún er bara að hugsa um sjálfa sig og að fjármagna eigin utan­landsferðir! Ég mun aldrei hjálpa fólki í „neyð“ aftur.“

Maðurinn sem merktur var við færsluna, Aron Mímir, lét ekki á sínu standa. „Maður hefði betur lagt allt saman inn á píeta samtökin þegar allt kemur til alls, það er bara hrifsað 10k hér og þar og hent sér bara í fléttur á amerísku ströndinni meðan ég vakna í frostinu og skafa bílinn. Áfram gakk.“

Guðrún segist ekki hafa lokað á mennina, eins og Arnar tók fram í færslu sinni, heldur hafi hún slökkt á Facebook tilkynningum sem fylgja skila­boðum þeirra.

„Ég borgaði öðrum þeirra í baka í dag. Ég er að reyna að fá hinn til að senda mér reiknings­númerið því ég vil bara borga þeim til baka, ég vil ekki að þeir geti notað þetta á mig. Þetta er búið að taka mjög mikið á mig og fjöl­skyldu mína,“ segir Guðrún. „Hann var voða passive aggressive, hann væri bara að hjálpa börnunum mínum og að ég þyrfti ekki að borga þetta, ég sagði honum að ég vildi ekki sitja undir þessari netníð.“

Guðrún segist vita til þess að fleiri konur hafi setið undir ásökunum frá sömu mönnum. „Það er önnur kona í nákvæmlega sömu stöðu og ég og hefur orðið fyrir barðinu á þeim.“

Guðrún er þó bjartsýn á fram­haldið, hún er í námi og stefnir á að verða vinnufær á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim