Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Andlega veikur maður fluttur á bráðadeild eftir rúðubrot

Annar hand­tek­inn fyrir að stela áfengi á skemmti­stað

Alls gista fjórir ein­stak­lingar í fanga­klefa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir nótt­ina, sam­kvæmt dag­bók lögrelg­unnar. Frá klukkan 17:00 í gær til 05:00 í morgun eru 102 mál bókuð í kerfum lög­regl­unnar. Hér má líta nokkur dæmi um þau verk­efni sem lög­reglan leysti af hólmi á tíma­bil­inu.

Einn ein­stak­lingur var hand­tek­inn, grun­aður um rúðu­brot og var hann vistaður í fanga­klefa á Hverf­is­götu í þágu rann­sóknar máls­ins.

Óskað var eftir aðstoð lög­reglu á skemmti­stað vegna ein­stak­lings sem grun­aður var um að stela áfengi á staðnum. Var hann hand­tek­inn en lát­inn laus eftir skýrslu­töku.

Þá var óskað eftir lög­reglu á hótel vegna sótölv­aðs ein­stak­lings sem var til vand­ræða. Var hann hand­tek­inn og vistaður í fanga­klefa á Hverf­is­göt­unni þar til hægt verður að ræða við hann.

Lík­ams­árás var einnig til­kynnt utan við skemmti­stað í mið­borg­inni en var einn hand­tek­inn og síðan lát­inn laus að lok­inni skýrslu­töku.

Einnig hafði lög­reglan á Hverf­is­götu afskipti af ein­stak­lingi en sá tók á rás þegar hann var spurður um nafn. Ekki komst hann þó langt þar sem lög­reglu­menn­irnir voru tals­vert sprett­harð­ari. Reyndist ein­stak­ling­ur­inn vera með ætluð fíkni­efni á sér og því hand­tek­inn. Var hann lát­inn laus að lok­inni skýrslu­töku.

Gríð­ar­mörg til­felli var um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkni­efna en einn þeirra öku­manna reynd­ist vera með tvö egg­vopn á sér þegar lög­reglan stöðv­aði hann. Var hann hand­tek­inn en lát­inn laus að lok­inni skýrslu­töku.

Sama lög­regla hafði einnig afskipti af ein­stak­lingi sem var að trufla störf lög­reglu. Neitaði kauði að gefa upp hver hann væri og var hann því hand­tek­inn. Þegar á lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu var komið neit­aði hann enn að segja til nafns. Var hann því vistaður í fanga­klefa þar til hægt er að kom­ast að nafni hans.

Þá var óskað eftir aðstoð lög­reglu að skemmti­stað vegna ein­stak­lings sem var í tökum dyra­varða. Ein­stak­ling­ur­inn var á peru­inni og er hann vistaður í fanga­klefa þar til hægt verður að taka af honum skýrslu.

Óskað var eftir aðstoð lög­regl­unnar á Vín­lands­leið vegna ein­stak­lings sem var með ógn­andi hegðun við þann sem til­kynnti málið. Á meðan lög­reglan var á leið­inni braut ein­stak­ling­ur­inn rúðu hjá til­kynn­anda. Var hann hand­tek­inn vegna gruns um rúðu­brotið. Reyndist hann and­lega veikur og var fluttur á bráða­mót­töku til skoð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Héraðsdómur Vestfjarða sýknaði mann af ákæru um hættubrot eftir að gestur hans veiktist í kjölfar þess að hafa borðað köku sem talin var innihalda kannabis.
Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­ver­andi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Heimur

Sátu uppi með ónýta lúx­us­ferða­tösku

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Mannanafnanefnd samþykkti átta eiginnöfn en hafnaði tveimur eiginnöfnum og einu millinafni.

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra