Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kallar nýja þjóðaröryggisstefnu yfirvalda aumingjaplagg: „Ekki bara aumlegt og óboðlegt orðasalat“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn Hrafns­son

Kristinn Hrafnsson tekur undir orð Ingibjargar Sólrúnar Gísla­dóttur um nýja þjóðar­öryggis­stefnu stjórn­valda.

Ritstjóri Wikileaks, Kristinn Hrafnsson segir í nýrri færslu á Facebook að hann taki undir orð Ingibjargar Sólrúnar um hinu nýju þjóðar­öryggis­stefnu stjórn­valda sem kynnt var í gær. Kallaði Ingibjörg stefnuna „Marklaust plagg“. Kristinn gengur hins vegar skrefi lengra og segir stefnuna ekki aðeins „aumlegt og óboðlegt orðasalat heldur að skálka­skjól til afsals valds“.

Þá kallar ritstjórinn Þjóðar­öryggisráð Íslands „athlægilsvaka og fíflagangs­fyrirbæri“ og segir að svo virðist sem það sé „kappsmál að gera þingið nauðsynja­laust fyrirbæri sem ætti bara að hittast einu sinni á ári til að álykta um íslenska tungu, þjóðar­blóm og skógrækt.“ Spyr hann í lok færslunar hvort ekki þurfi að stofna þingræðis­flokk til verndar lýðræðinu.

Færsluna má lesa hér:

„Hvað sem mönnum kann að finnast um Ingibjörgu þá er þetta hárrétt og líklegast hefði mátt taka dýpra í árinni. Þetta sé ekki bara aumlegt og óboðlegt orðasalat heldur að skálka­skjól til afsals valds. Mér sýnist sú hætta fyrir hendi að framkvæmda­valdið geti á grunni þessa aumingja­plaggs tekið veiga­miklar ákvarðanir, til dæmis í utan­ríkismálum og snið­gengið þingið – sérstak­lega ef málin eru send til afgreiðslu þessa athlægis­vaka og fíflagangs­fyrirbæris ÞÖRÍ (Þjóðar­öryggisráðs Íslands).

Það virðist kappsmál að gera þingið nauðsynja­laust fyrirbæri sem ætti bara að hittast einu sinni á ári í einn dag til að álykta um íslenska tungu, þjóðar­blóm og skógrækt.Þrískipting ríkis­valdsins er hvort sem er í höndum framkvæmda­valds, auðvalds og Sjálfstæðis­flokks þar sem tveir stólpar toppa alltaf hinn þriðja – nema allir séu í samfellu.Þarf ekki að fara að stofna hér þingræðis­flokk svo við getum mögulega orðið lýðræðis­ríki, það er að segja ef fólk nennir því?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim