Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Eftirtaldir bæjarfulltrúar sem ekki höfðu sómatilfinningu“ – Sigurður krefur bæjarstjórn svara

Sigurður nokkur skrifaði færslu á Facebook hópinn Norður­bærinn minn – Íbúar í Norðurbæ Hafnar­fjarðar þar sem hann segir frá spurningum sem hann lagði fyrir þá 11 bæjar­fulltrúa er vinna hjá Hafnar­fjarðarbæ. Snéru spurningarnar ákvörðun um að hefja framkvæmdur við byggingu íbúða við Hjalla­braut, við hlið skáta­heimilisins. Segir Sigurður að framkvæmdirnar, sem nú eru í fullum gangi, hafi mætt mikilli andstöðu Hafnfirðinga en svo virðist sem bæjarfulltúarnir hafi virt vilja bæjarbúa að vettugi. Hér eru spurningarnar sem Sigurður sendi í tölvu­pósti til allra bæjar­fulltrúanna ellefu:

1. Veittir þú þinn stuðning fyrir breyttu deilu­skipulagi til þess að greiða fyrir að af þessum framkvæmdum við Hjalla­braut gæti orðið?

2. Ertu hlynntur þessum framkvæmdum við Hjalla­braut?

Segist Sigurður hafa gefið fulltrúunum um þrjár vikur til að svara en aðeins tveir hafi séð sóma sinn í að svara. Það sé honum mikil vonbrigði.

„Ólafur Ingi Tómasson Sjálfstæðis­flokki svarar eftir­farandi:

Sæll Sigurður.

Til að svara þessum spurningum er einfalt að vísa í fundar­gerðir bæjarins þar sem allir fulltrúar í skipulags- og byggingar­ráði samþykktu deili­skipulags­tillöguna. Í bæjar­stjórn var deili­skipulagið samþykkt án mótatkvæða, eða með níu atkvæðum, tveir sátu hjá.

KveðjaIngi Tómassonbæjarfulltrúi Hafnar­fjarðar­bæformaður skipulags- og byggingar­ráðs“

Sigurður viðurkennir að hann hefði ekki vitað að þessar upplýsingar væru opinberar en sagði þó að þegar hann hafi reynt að finna þær á heimasíðu Hafnar­fjarðar­bæjar hafi það verið eins og að leita að nál í heystakka.

Hinn bæjar­fulltrúinn sem svaraði Sigurði var Jón Ingi Hákonarson, Viðreisn.

„Sælir

Sjálfsagt að svara þessum spurningum.Já ég greiddi atkvæði með framkvæmdinni sem leiðir til hins augljósa svars að ég styð framkvæmdirnar, ástæður fyrir atkvæði mínu er sú að Viðreisn styður almennt þéttingu byggðar, auk þess er gríðar­legur skortur á íbúðar­húsnæði í bænum þar sem lítið hefur verið byggt á undan­förnum rúma áratug. Þéttingar­verkefni verða alltaf umdeild og smekkur fólks er mismun­andi. Okkar sýn er sú að þéttingar­verkefni verða að falla að þeirri byggð sem fyrir er og við teljum að þetta verkefni geri það. Það voru því engin efnisleg rök til að vera á móti verk­efninu.Bestu kveðjurJón Ingi Hákonarson

Oddviti Viðreisnar í bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar“

Þakkar Sigurður þeim Ólafi Inga og Jóni Inga fyrir svörin en lýsir svo yfir vonbrigðum með svara­leysi hinna níu fulltrúa, sem hann telur upp og setur þannig pressu á að þau svari sér.

„Ég þakka þeim Ólafi Inga Tómassyni og Jóni Inga Hákonar­syni kærlega fyrir svörin en jafnfremt lýsi ég vonbrigðum og þungum áhyggjum yfir því að í bæjar­stjórn Hafnar­fjarðar sitji fólk sem hundsar þá sem þeir eru í vinnu hjá. Eftir­taldir bæjar­fulltrúar sem ekki höfðu sóma­tilfinningu til þess að svara og jafnvel standa fyrir máli sínu eru :

Rósa GuðbjartsdóttirKristinn AndersenHelga IngólfsdóttirKristín María ThoroddsenSjálstæðisflokki.Ágúst Bjarni Garðars­sonFramsókn og óháðir.Adda María JóhannsdóttirFriðþjófur Helgi Karlsson­Samfylkingu.Guðlaug Svala Stein­unnar KristjánsdóttirBæjarlistanum.Sigurður Þ. Ragnars­sonMiðflokki“

Færslan hefur fengið töluverð viðbrögð í hópnum en sitt sýnist þó hverjum. Flestir sem tjá sig undir færslunni eru mjög á móti framkvæmdunum en nokkrir styðja hana þó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim