Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

„Þetta var búið eftir helgina“

Björn bendir á að fyrirtækin verði að vera fjárhagslega í stakk búin að hefja rekstur á nýjan leik eftir faraldurinn.
Björn bendir á að fyr­ir­tækin verði að vera fjár­hags­lega í stakk búin að hefja rekstur á nýjan leik eftir far­ald­ur­inn.

Stjórn­endur ferða­þjónustu­fyrirtækja hafa margir hverjir þegar afskrifað sumarið. Flestir þeirra sem Mannlíf hefur rætt við þessa dagana segjast geta lifað af mánuð eða tvo, með aðstoð stjórn­valda, en svo þyngist róðurinn verulega. Þeir spá því sumir að fjölmörg fyrirtæki gætu farið í þrot. Númer hafa verið tekin af rútum og sumar­starfsfólki tilkynnt að krafta þess sé ekki þörf. Ýmsir aðilar telja að ferðalög Íslendinga innanlands geti hjálpað greininni. 

„Okkar áætlun gengur út á það að leggjast í híði,“ segir eigandi lítils ferða­þjónustu­fyrirtækis um stöðuna sem uppi er vegna COVID-19 faraldursins. Nær engir ferðamenn eru eftir á landinu og ef samtöl Mannlífs við stjórn­endur ferða­þjónustu­fyrirtækja eru lýsandi fyrir greinina alla, þá eru menn nánast búnir að afskrifa sumarið. Ef þær spár rætast blasir fjölda­gjaldþrot við greininni.

Mannlíf hefur undan­farna daga rætt við stóra og smáa aðila í ferða­þjónustu. Saman­dregið telja þeir sig flestir geta lifað apríl- og maímánuð af, með stuðningi ríkisins, en að brekkan verði afar brött ef júní, júlí og ágúst verða ónýtir. Ferða­þjónustu­fyrirtæki ganga því mörg hver plankann. „Það mun auðvitað ekkert vera þannig endalaust að maður geti lifað af einhverju smávegis eigin fé sem maður hefur getað safnað upp,“ segir einn þeirra sem óttast hið versta. Hann á von á því að það geti tekið hjólin sex til tólf mánuði að byrja að snúast á nýjan leik.

„Þetta var búið eftir helg­ina. Það er ekk­ert af fólki eftir. Við höfum lagt stærstum hluta okkar flota.“

Svo virðist sem flest ferða­þjónustu­fyrirtæki muni nýta sér úrræði stjórn­valda um hluta­bætur að fullu. Í þeim felst að starfs­fólkið þiggur 75 prósent atvinnu­leysis­bætur en vinnu­veitandinn greiðir þann fjórðung sem upp á vantar, upp að ákveðnu hámarki. Á samtölum Mannlífs við stjórn­endur ferða­þjónustu­fyrirtækja má heyra að þetta úrræði komi í veg fyrir ótal uppsagnir. Tveir þeirra benda þó á að til lengri tíma sé ómögulegt að greiða 25 prósent af launum starfs­fólks ef ekki kemur króna í kassann.

Bílarnir teknir af númerum

Eitt af þeim úrræðum sem ferða­þjónustu­fyrirtæki hafa gripið til er að taka hópferða­bíla og aðra fyrirtækja­bíla af númerum og losna þannig við kostnað af tryggingum og bifreiða­gjöldum. Þetta hafa bæði stór og smá fyrirtæki gert en Mannlíf greindi einmitt frá því á vef sínum www.man.is á mánudaginn að Gray Line hefði þá þegar tekið 80 prósent flotans af númerum. Þórir Garðarsson, stjórnar­formaður fyrir­tækisins, sagði við það tækifæri að umsvif fyrir­tækisins væru um eitt prósent af því sem áður var. Hann sagði að fyrir­tækið yrði sennilega að reiða sig á lánardrottna til að geta staðið undir því að greiða 25 prósent af launum starfs­fólks, með enga innkomu.

Björn Ragn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Kynn­is­ferða.

Fleiri fyrirtæki hafa gripið til þess ráðs að taka bíla af númerum. Þeirra á meðal er fjölskyldu­fyrirtækið Your Day Tours. Fyrir­tækið var stofnað árið 2015 og sérhæfir sig í dags­ferðum. Það rekur sjö litlar rútur en rætt er við einn af eigendum fyrir­tækisins í þessari umfjöllun. Sömu sögu er að segja af Reykjavík Excursions – Kynnis­ferðir ehf., þar sem 400 manns starfa. Um hundrað starfs­menn félagsins keyra um það bil 50 vagna fyrir Strætó bs. en önnur starfsemi liggur niðri. „Þetta var búið eftir helgina. Það er ekkert af fólki eftir. Við höfum lagt stærstum hluta okkar flota,“ segir Björn Ragnarsson, framkvæmda­stjóri Kynnis­ferða. Hann segir aðspurður að fyrir­tækið muni nýta sér hluta­bætur stjórn­valda fyrir um 300 manns.

Í svari Samgöngu­stofu við fyrir­spurn Mannlífs um afskráðar bifreiðar í eigu fyrir­tækja kemur í ljós að 14 þúsund farartæki voru skráð úr umferð í byrjun mánaðarins. Gera má ráð fyrir að þessi tala hafi hækkað töluvert núna allra síðustu daga. Til saman­burðar voru 13.700 bílar skráðir úr umferð í apríl í fyrra, en þess má geta að fall WOW air fyrir sléttu ári var reiðar­slag fyrir ferða­þjónustuna.

Ferðalög Íslendinga geta skipt höfuðmáli

Eitt af þeim úrræðum sem stjórn­völd hafa kynnt er stafrænt gjafabréf í ferða­þjónustu innanlands. Í þetta ver ríkið hálfum öðrum milljarði. Hver íbúi á Íslandi sem náð hefur 18 ára aldri fær fimm þúsund krónur til að nota upp í kaup hjá ferða­þjónustu­aðila. Þá hefur ríkið boðað mikið markaðsátak á erlendri grundu þegar rofar til í COVID-faraldrinum.

„Íslend­ingar munu lítið ferð­ast til útlanda á þessu ári. Það skiptir máli að við Íslend­ingar verðum dug­legir að nýta okkur íslenska ferða­þjón­ustu.“

Þeir ferða­þjónustu­aðilar sem Mannlíf hefur rætt við binda ekki miklar vonir við að Íslendingar muni flykkjast í þær ferðir sem útlendingar hafa verið duglegastir að kaupa undan­farin ár, svo sem ferð um Gullna hringinn eða að elta uppi norður­ljós. Sumir benda á að þarna séu þó tækifæri og fyrir­tækin þurfi að vera snjöll í að markaðs­setja ferðir sem Íslendingum kunni að þykja eftir­sóttar, svo sem fyrir starfs­menn fyrir­tækja.

„Íslendingar munu lítið ferðast til útlanda á þessu ári. Það skiptir máli að við Íslendingar verðum duglegir að nýta okkur íslenska ferða­þjónustu,“ segir einn viðmælandi. Annar segist nú vera að leggja höfuðið í bleyti hvernig hægt sé að ná til Íslendinga. Hann gerir ekki ráð fyrir tekjum frá útlendingum næstu mánuði, svo einhverju nemi.

Lestu ítarlega umfjöllun um málið í helgar­blaðinu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra