Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

„Það þurfti að fjarlægja augað úr dóttur minni eftir að læknar greindu hana ranglega með exem“

Amelia er svo sannarlega lítil hetja
Amelia er svo sann­ar­lega lítil hetja

Katherine O‘Neill, móðir ungrar stúlku í Bretlandi, fékk mikið áfall þegar fjarlægja þurfti annað augað úr dóttur hennar eftir að hún greindist með sjaldgæfa tegund krabba­meins. Læknar sögðu henni upphaf­lega að um væri að ræða exem.  Miðillinn Mirror fjallaði um málið en áhyggjur móðurinnar hófust eftir að dóttir hennar, Amelia,  byrjaði að nudda vinstra augað skömmu eftir fæðingu.  Læknar sögðu henni að  hafa ekki áhyggjur en þegar stúlkan var 6 mánaða gömul tók amma hennar eftir því að augað hennar virtist „dautt“. Daginn eftir fór Katherine með dóttur sína til læknis og aðeins viku síðar greindist hún með E-gráðu æxli í vinstra auganu. Katherine segir lækna hafa í fyrstu verið sannfærða um að um exem  væri að ræða.

„Mér var fyrst ráðlagt af heilsu­gæslunni að setja brjósta­mjólk á það(augað). Það var áberandi roði á augn­lokinu, en augað virtist eðlilegt. Æxlið hafði farið fram hjá læknunum í sjón­skoðun nýbura og mér var bent á að roðinn gæti verið exem,“ sagði Katherine og bætti við:„Þegar Amelia greindist var ég var niður­brotin. Ég hringdi ekki í fjöl­skylduna mína þar sem ég gat ekki brotnað niður strax, ég átti eftir hálftíma göngutúr heim með börnin. Í göngu­ferðinni stöðvuðu tvær dömur mig til að dást að börnunum og ég man að ég var bara ekki til staðar – Mér fannst þetta svo súrrealískt og ég trúði ekki því sem mér hafði verið sagt“. Við tóku sex lotur af krabbameins­lyfja­meðferð yfir sex mánaða tímabil. Æxlið minnkaði en krabba­meinið fór að vaxa á ný sem varð til þess að móðirin tók þá átakanlegu ákvörðun um að láta fjarlægja augað.

„Ég svaf í rúminu við hliðina á henni (meðan á krabbameins­lyfja­meðferð stóð), hún var tengd við vír og það var hræðilegt að fylgjast með þessu vitandi hversu veik hún yrði. Næsta morgun var hún mjög föl og um leið og hún vaknaði kastaði hún upp. Þetta gerði hana mjög syfjaða og veika. Ég tók þá ákvörðun að láta fjarlægja auga Ameliu. Hún var búin að ganga í gegnum nóg“.

Nokkur tími er nú liðinn frá aðgerðinni og segir móðir Ameliu henni ganga frábærlega. „Hún er ofurstjarna. Hún hefur svo yndis­legan persónu­leika. Hún hefur alltaf áhuga á að prófa nýja hluti og eignast nýja vini. Hún elskar Peppa Pig, að baka með ömmu, skella sér í garðinn og hjálpa til í eldhúsinu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár