Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Áburðarverksmiðjunni fórnað fyrir innflutta verðbólgu

Björgvin Harðarson stórbóndi í Laxárdal gerðist spjall­vinur Guðna Ágústs­sonar. Björgvin rekur svínabú í einum efsta bænum í Skeiða- og Gnúp­verjahreppi ásamt konu sinni, Petrínu Þórunni Jóns­dóttur. Foreldrar hans hófu svína­ræktina árið 1978 en hann gekk inn í búskapinn að námi loknu.

Björgvin telur að innlend fram­leiðsla bæði á matvælum og hráefnunum sem þarf til búskaparins sé mikilvæg sjálf­stæðu ríki. „Þetta er í rauninni það sem þeir gerðu þegar við fengum þessa svokölluðu Mars­hallaðstoð. Bandaríkja­menn komu með peninga hérna. Þeir skilyrtu þetta, þeir sögðu þið skuluð byggja áburðar­verksmiðju og sements­verksmiðju. Við viljum að þið verðið sjálfstæð þjóð og ekki öðrum háðir. Og við fórnuðum hvoru tveggja.“

Nú erum við bara með inn­flutta verð­bólgu í stað­inn.

Samkvæmt Björgvini komu svín hingað til lands með land­námsmönnum ásamt öðrum bústofni, máli sínu til stuðnings bendir hann á að hér á landi eru fjölmörg örnefni sem vísa til svína­halds. Svín munu hafa þrifist ágætlega framanaf en þó hefur þeim fækkað umtals­vert þegar líða tók á miðaldir.

Árið 1995 hófu menn að flytja inn erfðaefni svína frá Noregi til að efla stofninn og segir Björgvin að sennilega hefði svína­ræktun lagst af ef ekki hefði komið til þess en í dag fást 1800 kíló á hverja gyltu á ársgrundvelli en var áður á að giska um 900 kíló.

Björgvin bendir á að hér á landi sé engin sýkla­lyfjanotkun, notkun á vaxtar­hormónum eða neinu þessháttar. „Allt heil­brigði þarf að vera fyrsta flokks, ekki nein salmonella eða neitt svona.“ Slíkt er þó heimilt annarsstaðar í heiminum og allt aðrar kröfur þar sem skekkir heilmikið samkeppnina, þó sé íslenski svína­stofninn með þeim betri í heiminum.

Björgvin og Petrína reka litla kjöt­vinnslu í Árnesi en Petrína sér mestmegnis um hana með hjálp frá Björgvini. Þau taka til sín kjöt og vinna það undir heitinu Korngrís en þeirra sérstaða er að selja íslenskt svínakjöt sem alið er á íslensku korni.

Eftir að Björgvin gekk inn í búreksturinn áraði þannig að hæpið þótti fyrir tvær fjöl­skyldur að lifa af búskapnum þannig að þau hjóna­kornin brugðu á það ráð að opna pizzastað þar sem kona hans hafði unnið við slíkt áður og öllum hnútum kunnug. Þar sem þau búa á strjálbýlu svæði álitu þau svo að þetta þyrfti að vera eitthvað færanlegt þannig að úr varð pizzavagn sem þau keyra um sveitir Suður­lands og hafa gert undan­farin 19 ár. Í fyrstu héldu þau að helsti mark­hópurinn yrði sumar­bústaða­eigendur og ferðamenn en annað kom á daginn. „Þetta eru fyrst og fremst heimamenn. Fyrst og fremst. Það er engu að síður mismun­andi milli sveita hvernig pizzamenningin er.“ Inntur eftir því hvort þetta væru sérstakar pizzur þá segir hann „Já og nei, þetta eru náttúru­lega bara pizzur eins og við viljum fá sjálf. Það er eitthvað á þessu, það er ekkert verið að spara það neitt. Þetta er gæða hráefni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt