Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Meirihlutinn vildi ekki sjá litasjónvarpið: „Ég er nú að vísu blindur og læt mér á sama standa“

Litasjónvarp?
Lita­sjón­varp? Mynd: Lubbi

Árið 1974 var lita­sjónvarpið mikið í deiglunni hér á landi en sitt sýndist hverjum um þá hugmynd að leyfa það hér á landi. Frægt er orðið að Framsóknar­þing­maðurinn Páll Pétursson var á móti lita­sjónvarpinu. En hann var ekki einn um það á landinu.

Þann 26 ágúst árið 1974 birti Vísir niður­stöður úr skoðana­könnun sinni þar sem spurt var Teljið þér tímabœrt að setja upp lita­sjónvarp á Íslandi?

Niður­stöðurnar eru nokkuð óvæntar fyrir nútíma­manninn en GP á Vísi sagði svo frá:

„Látum ekki Fœreyjar verða á undan!“

„Ég held að fólk hafi nóg með þessar átta þúsundir, sem það borgar fyrir svart-hvitt sjónvarp þótt ekki bætist hin ósköpin á,“ svaraði kona ein, spurningu Vísis­manna um, hvort tímabært væri orðið að setja upp litsjónvarp. „Að vísu orðið timabært, en hins vegar svo dýrt, að þeim fjármunum væri betur varið til einhvers þarfara,“ sagði önnur kona. Þá sagði karl einn: „Það mætti nú reyna eitthvað fyrst að bæta þetta, sem við höfum, áður en ráðizt verður i lita­sjónvarp.“

Eins og meðfylgjandi tafla hér sýnir glögglega, þá svaraði áberandi meirihluti þeirra tvö hundruð og tuttugu manna og kvenna, sem blaðamenn Vísis hringdu í, spurningunni neitandi.

Þeir töldu það ekki tlmabært. Það varð annars bert af undir­tektunum, að þorrinn lét þetta mál mjög til sin taka. Nánast allir höfðu á þvl ákveðna skoðun, og svöruðu ýmist játandi eða neitandi. Aðeins níu af hundraði voru óákveðnir. Og ekki aðeins það. Heldur færði einnig fólk ýmis rök fyrir því og þær ástæður helztar, sem það taldi mæla gegn því að ráðast í að setja upp lita­sjónvarp. Þar kenndi margra grasa að sjálfsögðu. Og ekki voru kannski öll nein beinlinis vegna þess, að svarafólkiöð teldi ekki orðið TÍMABÆRT að setja upp lita­sjónvarp. Það taldi kannski ekki tlmann núna heppilegan til þess, og það i flestum tilvikum af efnahags­legum ástæðum.

— Nokkur dæmi:

„Vegna dýrtíðar er ég andvíg lita­sjónvarpi.“ — „Nei, þetta, gamla má nú eitthvað skána fyrst.“ — „Ég vil nú fyrst geta séð það tvílita almennilega,“ svaraöi maður einn á Flateyri.

„Það má nota peningana til skynsamlegri hluta. Tja, eins og t.d. til að koma útvarpi og „litlausa“ sjón­varpinu í almennilegt ástand.

Það eru kolómögulegar útsendingar, sem ná til okkar hér í Borgarnesi,“ sagði einn sem sé í Borgarnesi.

Á Suðureyri sagði einn maður: „Þeir mega nú bæta fyrst útvarps­skilyrðin.“ — Og fleiri mundu eftir útvarpinu…. afsakið, hljóð­varpinu… þegar þetta bar á góma. Eða eins og einn sagði: „Fyrst má koma stereoútvarp.“ „Tímabært eða ekki tlmabært…. er það ekki fyrst og fremst kostnaðurinn, sem verður að hugsa um,“ sagði einhver. „Það væri svo sem nógu skemmtilegt, en er það ekki of dýrt,“ sagði einhver konan.

Þannig létu margir kostnaðinn sér vaxa í augum. Kostnað fyrir nokkuð, sem menn kölluðu „lúxus,“ „óþarfa“, o.s.frv. Svo komu hinar og þessar ástæður….:

„Nei, ekki eins og er. Helzt ættum við að gera þetta smátt og smátt.“ — Ég treysti mér ekki til að greiða hærra afnota­gjald.“ — „Þegar það heyrist ekki einu sinni almennilega í útvarpinu hér fyrir norðan, þá sé ég ekki ástæðu til að hlaupa af stað með litsjónvarp. Að minnsta kosti ekki fyrr en tækni­mennirnir okkar hafa sýnt sig ráða við það, sem einfaldara á að heita.“ — „Nei, nær væri heldur að sjá til þess að fá að hafa Kana­sjónvarpið í friði. Það er þó okkur að kostnaðar­lausu.“ — „Ég vildi frekar halda Kana­sjónvarpinu og fresta litsjónvarpi.“

Einn vildi bíða og velja heppilegra augnablik: „Rétt að taka upp lita­sjónvarp, þegar þarf að endurnýja hvort eð er tækja­kostinn.“ — annar var með svipað í huga: „Bíðum þar til sjón­varpið hefur starfað þann tima, sem búast má við að sjónvarps­notendur þurfi að endurnýja tækin heima hjá sér.“

Þeir voru margir Fram­sókn­ar­menn­irnir árið 1974

Svo taka hinir sem töldu það fyllilega tlmabært að taka upp lita sjónvarp, eða eins og maðurinn sagði: og auk þess heldur, sem það var aldrei neitt vit í þvl að byrja með svart-hvítt. Það var aldrei neitt annað en óðagot stefnt til höfuðs Kana­sjónvarpinu, sem ákveðnir aðilar töldu sig geta lokað, þegar Íslenzka rlkið hefði sjálft byrjaö einka­rekstur á sjónvarpi.“

— „Lita­sjónvarp átti að koma strax. Það er svo dýrt að skipta.“ „Þótt fyrr hefði verið. Það er aumingja­skapur að hafa ekki verið kominn með lita­sjónvarp fyrir 20 árum.“ — „Nú er það ekki þróunin?“ — „Já, alveg sjálfsagt. Það verður lika bráðum hætt að framleiða tæki fyrir svart-hvítt.“ Og svo loks ein mjög veiga­mikil ástæða: „Nú! Er lita­sjónvarp ekki það sem koma skal? Rétt er að undirbúa það fyrr en síðar. Þeir mega ekki verða á undan okkur með litinn í Færeyjum.“

Það var annars áberandi í þessari skoðana­könnun, þegar niður­stöður voru bornar saman, að konur voru flestar mjög ákveðnar á móti lita­sjónvarpi. Þær horfðu flestar i kostnaðinn.

Í þéttbýli voru t.d. rúmlega 30 konur á móti lita­sjónvarpi meðan rúmar 23 voru meö því. En ríflega 30 karlar í þéttbýli voru með lita­sjónvarpi og 23 á móti. — Í dreif­býlinu voru hins vegar hlut­föllin jöfn á milli kynja og svipaður meirihluti á móti lita­sjónvarpinu. — Og þetta er ein af fáum skoðana­könnunum, sem Vísir hefur gert, þar sem ekki eru fleiri konur óákveðnar í afstöðu sinni, heldur en karlar. — Svo miklu lét fólk þetta mál sig skipta.

Vel á minnzt — fyrst vikið er að þeim, sem óákveðnir voru í því, hvort þeir teldu lita­sjónvarp tímabært. Tveir gerðu grein fyrir hlutleysi sínu í málinu: Annar sagði:

„Mér finnst nú það svart-hvíta hafa nógu spillandi áhrif á unglinga út af fyrir sig, þótt ekki þurfi hitt til líka. En af því ég hef nú þetta álit á sjón­varpinu, þá tek ég ekki afstööu til þessa máls.“ En hinn sagði: „Ég er nú að vísu blindur og læt mér á sama standa um það — Í hversu mörgum litum útsendingar sjón­varpsins eru. Ég var bara að hugsa um hitt, hvort það yrði ekki óksöp dýrt að fleygja öllum gömlu sjónvarps­tækjunum, þegar liturinn kemur.“

Það var sem sé ekki beinlinis vegna þess, að þeir væru alveg skoðana­lausir í málinu, að þeir tóku þennan pól í hæðina. Það er þvl ekki ofsagt, sem í upphafi var getið, að þorrinn hafi látið þetta til sín taka.

Skemmst er frá því að segja að lita­sjónvarpið kom á endanum, hvort sem fólki líkaði það vel eða illa.

Greinin birtist áður á mannlif.is þann 1. júlí síðastliðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis