Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Jóhannes sendir konum kaldar kveðjur: „Laug því blákalt að þernur hefðu það nú alls ekki sem verst“

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjónustunnar , fullyrti í Silfri Egils í dag að hótel­þernur hefðu ágætar tekjur af starfi sínu. Jóhennes reyndi að bera laun þeirra saman við laun grunn­skóla­kennara og gaf í skyn að þernur væru jafnvel með of há laun.

Leikkonan Steinunn Ólína segir þetta kaldar kveðjur til kvenna á kvenna­daginn í pistli sem hún birtir á Facebook. Hún segist hafa kannað málið sjálf og segir Jóhannes einfald­lega hafa logið í beinni útsendinu.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Stein­unnar í heild sinni.

Ágætu konur,
Til hamingju með konu­daginn. Ég átti framan af náðugan konudag, lá í
rúminu og drakk kaffi hlustaði á Sprengi­sand og skipti svo yfir á
Silfrið. Þar var meðal annarra atvinnu­skrumskælirinn Jóhannes Skúlason
í viðtali sem laug því blákalt að Eflingar þernur á hótelum hefðu það
nú alls ekki sem verst, heldur væru þær á launum sem kæmust nálagt því að vera laun grunn­skóla­kennara!

Hann sumsé sendi lægst launuðu konum á vinnu­markaði konudags­kveðjur
með því að sparka í aðra fjölmenna láglaunastétt sem mest er skipuð
konum, kennara. Hann hefði líka getað nefnt til sögunar aðra mikilvæga
láglauna kvenna­stétt, hjúkrunar­fræðinga, eða bara einhverja aðra
mikilvæga kvenna­stétt sem heldur þessu samfélagi gangandi.

Ég hafði fyrir því að verða mér út úr nokkra launa­seðla hótel­starfsfólks til að geta með eigin augum séð þessi ofurlaun sem
Jóhannes kallar svo og það var eins og mig grunaði, laun með
tölu­verðri yfirvinnu og vakta­álagi sem gerir ráð fyrir að fólk stundi
fulla vinnu, eigi stundum frí, eru í kringum 400.000 og yfirleitt rétt
undir því.

Ég get ekki deilt myndum af launa­seðlum til að vernda það starfs­fólk
sem sendi mér þá, en ég hvet blaðamenn sem ræða við SA að hafa fyrir
því að skoða þessi mál ofan í kjölin og kveða lygar þeirra í kútinn og
leyfa þeim ekki dag eftir dag að fara með staðlausa stafi í fjöl­miðlum.
Launa­seðlar gefa nefnilega raunsanna mynd af ástandi og þar sést svart á hvítu hvernig laun verða til.

Í þeim tilfellum sem verka­maður bílstjóri eða þerna á hóteli ná launum
sem SA gera ítrekað að dæmum um ofurlaun, er um fullkomlega óeðlilegt
vinnuálag að ræða og rannsóknar­efni er þá hvers er til kostað af
viðkomandi starfs­manni sem er auðvitað jafna sem verður að taka inn í
dæmið. Hvað er vinnu­eftirlitið, samgöngu­stofa að gera? Ekkert að því
er virðist!

Áróðurs­herdeild SA er ruddaleg í allri sinni framkomu, svífst einskis,lýgur blákalt
leikur sér að tölum til að útmála baráttu láglaunafólks sem hlægilega.
Og að vanda eru það að langmestu leyti konur sem eru skotspónn háðsins.
Gleði­legan konudag!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim