Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Ólína kveður systur sína Gauju: „Góðgerðarmaður margra sem nú sakna og syrgja“

Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir, þjóð­fræðingur, rithöfundur og fyrr­verandi alþing­kona, kveður á Facebook systur sína, Guðbjörgu Þorvarðar­dóttur sem lést nýverð. Guðbjörg var dýra­læknir og rak Dýra­læknastofa Dagfinns. Hún var 71 ára og lætur eftir sig eiginkonu og fósturson. Ólína deilir minningar­grein sem hún skrifaði ásamst systur sinni Halldóru. Dagurinn í dag sé helgaður Gauju og muni verða „erfiður en fallegur kveðju­dagur.“

„Það er sár tilfinning að setja niður á blað minningarorð um systur sína, en öllu er afmörkuð stund. Nú hefur ævi Gauju systur okkar verið mörkuð stund og henni lokið. Gauja var stór­brotinn persónu­leiki og í okkar lífi var hún „stór systir“ í orðsins fyllstu merkingu, með brosið sitt breiða, þrótt­mikla röddina og hlýtt hjartað. Hún var einstakur persónu­leiki, hugumstór, lífsglöð og algjört tryggðar­tröll,“ segja þær systur.

Gauja var laus við allan hégóma og ávallt trú sinni sannfæringu. „Áberandi þáttur í fari Gauju var hversu sjálfstæð hún var í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var algjör­lega laus við hégóma og lét tísku­strauma og tíðaranda ekki hafa mikil áhrif á sig, enda hafði hún sjálfa sig, gildismat sitt og lífs­viðhorf gjör­samlega á hreinu. Þannig gekk hún fram í lífinu, heil og sönn í öllum samskiptum við annað fólk. Og það munaði um Gauju þar sem hún kom, ævinlega málefnaleg, rökföst og trú sannfæringu sinni en alltaf sanngjörn.“

Gauja var sérstak­lega víðförul og hvar sem hún var reyndist hún hrókur alls fagnaðar. „Gauja systir átti sér margar hliðar, var í senn raunsæ og jarð­bundin en í sömu andrá lífskúnstner sem kunni að njóta og fagna lífinu. Þeim fækkaði ört löndum veraldar sem Gauja hafði ekki heimsótt, því húnhafði unun af að ferðast og kynna sér sögu og menningu annarra þjóða. Hún var félags­lynd og hafði sterka nærveru. Öll hennar framganga endur­speglaðist af víðsýni, skynsemi og umburðar­lyndi. Hrein­skilin var hún og hafði samkennd með öðrum. Hún var hrókur alls fagnaðar í góðum hópi á glöðum stundum, vinamörg og það var gott að eiga hana að vini,“ segja þær systur.

„Nú hefur elsku systir okkar fengið hvíldina sem hún var farin að þrá undir það síðasta. Hún skilur eftir sig stórt skarð. Í hugum okkar lifir minningin um systur sem var höfðingi í lund, sannur vinur vina sinna og góðgerðar­maður margra sem nú sakna og syrgja. Þyngstur er harmur Juliette konu hennar og Tuma sem var henni sem sonur. Þeim færum við okkar dýpstu samúðar­kveðjur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“