Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Segir meirihlutann banna umræða um málefni dótturfyrirtækis OR: „Laumuspil og leyndarhyggja“

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Kjartan Magnússon borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins segir að „borgar­fulltrúar Samfylkingar, Fram­sóknar, Pírata og Viðreisnar hafa bannað að umræða um málefni Ljós­leiðarans, dóttur­fyrirtækis Orkuveitu Reykja­víkur, verði á dagskrá næsta borgar­stjórnar­fundar, sem haldinn verður þriðjudaginn 20. desember.“

Þar hugðist Kjartan „ræða almennt um stöðu Ljós­leiðarans og Orku­veitunnar og spyrja borgar­stjóra hvaða áhrif síðustu fjármála­gerningar fyrir­tækjanna hafi á stöðu Reykja­víkurborgar og fjárhags­áætlun hennar, sem samþykkt var fyrir rúmri viku.“

Hann er klár á því að „slíkt bann er brot á ákvæðum 27. greinar sveitar­stjórnar­laga og 34. greinar samþykktar um stjórn Reykja­víkurborgar og fundar­sköp borgar­stjórnar en þar er skýrt kveðið á um að borgar­fulltrúi/sveitar­stjórnar­maður eigi rétt á að tekið verði á dagskrá borgar­stjórnar­fundar hvert það málefni, sem sérstak­lega varðar hagsmuni sveitar­félagsins eða verkefni þess. Borgar­stjórnar­meirihlutinn hefur enga heimild til að hafna því að löglega fram borið mál, sé sett á dagskrá borgar­stjórnar­fundar. Engin fordæmi eru fyrir slíku umræðu­banni í borgar­stjórn Reykja­víkur.“

Kjartan nefnir einnig að „með slíku banni gerist meirihlutinn sekur um vald­níðslu og einræðis­tilburði. Rétt er að benda á að samkvæmt sveitar­stjórnar­lögum er heimilt að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Meirihlutinn hefði þannig getað samþykkt að halda fund fyrir luktum dyrum ef hann telur að málefni Ljós­leiðarans og Orku­veitunnar þoli ekki dagsins ljós. Laumuspil og leyndar­hyggja hafa einkennt vinnu­brögð borgar­stjórnar­meirihlutans í málinu.“

Hann segir að „kjörnir fulltrúar almennings og stjórnar­menn OR hafa hvað eftir annað neitað að tjá sig um málefni Ljós­leiðarans. Gerist það þrátt fyrir að miklar umræður hafi átt sér stað í fjöl­miðlum um fyrir­huguð kaup Ljós­leiðarans á stofnneti Sýnar og þjónustu­samning milli fyrir­tækjanna. Ljóst er að umrædd ákvörðun er mikils háttar og að auki um að ræða margra milljarða kaup og fjár­festingu utan skilgreinds starf­svæðis OR.“

Að mati Kjartans er mikilvægt „að fram fari umræða á vettvangi borgar­stjórnar um þennan viðskipta­samning og þá stefnu­breytingu, sem hann hefur í för með sér fyrir Ljós­leiðarann, OR og Reykja­víkurborg. Slíka umræðu er vel hægt að taka á grund­velli upplýsinga, sem þegar hafa verið gerðar opinberar og ræddar í fjöl­miðlum.“

Hann er klár á því að „tilgangurinn með umræðu­banni borgar­stjórnar­meirihlutans er því greini­lega sá að koma í veg fyrir umræðu sem meirihlutanum finnst óþægileg; það er um stór­fellda lántöku Ljós­leiðarans og áhrif hennar á fjárhags­áætlanir Reykja­víkurborgar og Orku­veitunnar. Þá er ljóst að borgar­stjóri og borgar­fulltrúar meirihlutans vilja firra sig ábyrgð á málinu en varpa henni þess í stað á stjórn Orkuveitu Reykja­víkur eftir því sem kostur er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis