Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Þórður Snær sigar Vilhjálmi á vafasaman bloggara: „Messíasarkomplex Þórðar Snæs er alkunnur“

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður.
Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður.

Páll Vilhjálmsson, nokkuð vafasamur bloggari og kennari, segist á bloggi sínu hafa fengið stefnu frá Þórði Snær Júlíussyni og Arnari Þór Ingólfs­syni, blaða­mönnum á Kjarnanum. Hann fullyrðir að þeir hafi fengið lögmanninn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson í málið. Það hlýtur að teljast nokkuð kaldhæðnislegt í ljósi þess að Vilhjálmur hefur sérhæft sig í mála­ferlum gegn blaða­mönnum Íslands.

Páll skrifar: „Tveir sakborningar í RSK-saka­málinu, Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson stefna höfundi Tilfall­andi athugasemda fyrir héraðsdóm vegna meintra ærumeiðandi ummæla. Lögmaður þeirra félaga, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson krefst ómerkingar tvennra ummæla.

  1. Arn­ar Þór Ing­ólfs­son og Þórður Snær Júlí­us­son, blaðamenn á Kjarn­an­um, […] eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skip­stjóra Steingríms­sonar og stuldi á síma hans.

og

  1. Saksóknari mun gefa út ákæru á hendur blaða­mönnum RSK-miðla, líklega í september.

Þeir Þórður Snær og Arnar Þór vilja hvor um sig 1,5 m.kr. í miska­bætur og að málkostaður sé greiddur af bloggara.“

Páll virðist þó ekkert gefa eftir. „Páli skip­stjóra var byrlað 3. maí 2021 og síma hans stolið á meðan hann var meðvitundar­laus. Gögn úr símanum urðu frétt Þórðar Snæs og Arnars Þórs í Kjarnanum 21. maí í fyrra. Lögreglu­rannsókn leiddi til þess að Þórður Snær og Arnar Þór fengu stöðu sakborninga, segja það sjálfir í frétt Kjarnans 14. febrúar. Sama hvernig á það er litið eiga Þórður Snær og Arnar Þór aðild að RSK-saka­málinu. Annars væru þeir ekki sakborningar,“ skrifar Páll.

Hann segir stefuna ber öll merki yfirlætis Þórðs Snæs Júlíussonar. „Í stað þess að gera grein fyrir stöðu sinni í RSK-saka­málinu stefna blaða­mennirnir bloggara fyrir að segja að þeir eigi beina eða óbeina aðild að sakamáli þar sem þeir eru sakborningar. Yfir vötnum stefnunnar svífur sá andi að blaðamenn séu æðstuprestar opinberrar umræðu. Aðrir skulu þegja, nema ef tekið er undir málflutning blaða­manna. Þá má tala. Textinn er með höfundar­einkennum ritstjóra Kjarnans. Með tilgerða­legu yfirlæti segir að bloggari sé ekki í blaðamanna­félagi og því óverðugur. Það er þá munur að vera í Blaðamanna­félagi Ísland sem verð­launar sakamenn,“ segir Páll.

„Messíasar­komplex Þórðar Snæs er alkunnur. Í lögreglu­yfirheyrslu var viðkvæðið; en ég er verðlauna­blaðamaður. Über-Doddi staðhæfir að það sé ærumeiðing að hann sé sakborningur og eigi yfir höfði sér ákæru. Maður sér fyrir máls­vörnina í dómssal: ég er hafinn yfir lög og rétt, orð mín eru vegurinn, sann­leikurinn og lífið. Kjarninn er heilög ritning.

Lög voru brotin á Páli skip­stjóra þegar honum var byrlað, síma hans stolið, einkagögn gerð opinber og send í umferð til óviðkomandi. Þórður Snær ann skip­stjóranum ekki verndar laganna. En Þórður Snær heimtar að lögin verndi sína æru. Hræsni í hæstu hæðum.“

Mála­tilbúnaður Þórðar Snæs og Arnars Þórs er einn stór brandari. Ef það má ekki segja opinber­lega almælt tíðindi, þótt þau komi við kaun blaða­manna, má pakka tjáningar­frelsinu saman og senda það í Gúlagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum