Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lífsreynslusaga Mannlífs: Draumurinn sem varð að martröð

Seint á síðustu öld var ég 18 ára og nýlega búinn að eiga hamskipti. Ég fór úr því að vera vandræða­legur, horaður, síðhærður spangar­unglingur yfir í nokkuð brattan, ágætlega útlítandi ungan mann, með greitt í píku að vísu en nokkuð fram­bærilegur að öðru leyti. Ég hafði fram að þessu ekki verið neitt sérstakt kvenna­gull, hafði átt eina kærustu í mánuð en annars bara látið mig dreyma um hylli kvenna.

Ég bjó úti á landi á þessum árum og var í mennta­skólanum í bænum mínum. Ball var á næsta leyti þegar þessi lífs­reynslusaga hefst. Ekki man ég hvaða band var fengið til að spila á ballinu, en ef það var ekki Sálin hans Jóns míns var það sennilega Síðan skein sól, þannig að von var á fullu húsi.

Systir mín, Stefanía, hafði stuttu áður kynnst förðunar­fræðingi frá Reykjavík sem við skulum kalla Guðrúnu. Hún var 24 ára og hress, að sögn systur minnar. Guðrún hafði fengið boð á ballið frá fjórða árs nema úr næsta bæjar­félagi en vantaði gistingu. Systir mín spurði móður okkar hvort Guðrún fengi að gista hjá okkur og að hún lofaði að mála mömmu í þakklætis­skyni. Mamma var treg til, enda um ókunnuga konu að ræða, en sló svo til eftir frekara suð frá systur minni.

Ég mætti á ballið vel slompaður eftir fyrir­partí og gerði mig gildandi á dans­gólfinu. Allt í einu stóð stór­glæsileg stelpa fyrir framan mig og ég upplifði eitthvað sem ég hafði aldrei upplifað áður; rafmagnaða kemistríu. Hún horfði í augun á mér og færði sig nær og spurði hvort ég væri bróðir Stefaníu. Ég sagði svo vera og hafði varla sleppt orðinu þegar tungur okkar mættust í því sem mér fannst mjög kynþokka­fullur koss, en gæti trúað að nærstödd vitni hafi ekki verið sammála því mati mínu. En við smullum líka svona rosalega vel saman þarna á ballinu, slefið slitnaði ekki á milli okkar og hendur okkar könnuðu nýjar lendur, ef svo má að orði komast. Kannski má það ekki í dag og biðst ég þá afsökunar á því. Og svo fór að við fórum saman heim.

Þegar heim var komið héldu kossarnir og káfið áfram, en við komumst ekki lengra en í sófann inni í stofu. Ég var ekki að trúa hvað var að gerast, draumur lúðans með spangirnar var að rætast, íturvaxin og falleg kona hafði áhuga á mér! Af öllum karl­mönnunum á ballinu hafði hún bara áhuga á mér! Við vorum byrjuð að stunda kynlíf í sófanum (róleg, ég henti laki á sófann), en þá gerðist svolítið sem fékk mig til að raula Paradise by the Dashboard Light með Meat Loaf í huga mér:

Stop right there!
I gotta know right now!
Before we go any further!
Do you love me?
Will you love me forever?
Do you need me?
Will you never leave me?
Will you make me so happy for the rest of my life?
Will you take me away and will you make me your wife?
Do you love me!?
Will you love me forever!?

Guðrún tók sem sagt þessa ræðu á mig. Sagðist ekki vilja sofa hjá mér nema með því loforði að við myndum byrja í sambandi í kjölfarið. Á þessu augna­bliki var hormóna­starfsemin í ungum líkama mínum að vinna yfirvinnu, allar æðar þandar og aðeins örlítið blóð eftir í hausnum. Ég sagði að sjálfsögðu „Já ókei!“, en Guðrún sendi mig í herbergið mitt þar sem ég átti að hugsa málið í 15 mínútur. Ég hlýddi og fór inn í herbergi. En ég hugsaði ekkert í 15 mínútur, ég beið bara. Greddan var skynseminni yfir­sterkari. Kortéri síðar mætti ég aftur inn í stofu og tilkynnti Guðrúnu að ég gengist við skilyrðum hennar. Fórum við svo inn í herbergi mitt og áttum frábæra nótt saman.

Um klukkan 11 daginn eftir, vaknaði ég þynnri en silki­klútur Meat Loaf og þegar ég var að skríða á fætur hoppar Guðrún inn í herbergi með bros og vör. „Hæ, elskan!“ sagði hún og tjáði mér svo að hún væri búinn að tala við gamla grunn­skóla­stjórann minn og spurt hann hvort hann væri með lausa stöðu í skólanum og að hann ætlaði að hugsa málið. Þá sagði hún mér að hún væri einnig búin að hringja í eigendur lausra íbúða í plássinu, því við værum að fara að flytja inn saman. Ég fann að hjartað á mér byrjaði að slá hraðar en nokkru sinni og ég fann að andlitið á mér tók að skipta um lit og varð eldrautt á mettíma.

Ástæðan fyrir þessari líðan var tvenns konar. Annars vegar helltist skömmin yfir mig fyrir að hafa logið að henni að ég vildi byrja með henni, svo hún svæfi hjá mér og hins vegar vegna þess að nú yrði ég að koma mér undan þessu óvænta fullorðins­sambandi sem ég var kominn í.

Ég settist niður með henni og sagði henni sann­leikann. Ég hafi bara verið spólgraður, 18 ára vitleysingur sem hefði sagt hvað sem er til að halda áfram leiknum, nóttina áður. Að segja að hún hefði tekið þessum (að mér fannst augljósa) sannleika illa væri vægt til orða tekið.

Hún fékk ofsa­kvíðakast, ofandaði og grét. Alls ekki það sem ég bjóst við, enda þekktumst við akkúrat ekkert. Ég fór með hana á heilsu­gæsluna þar sem læknir sem ég þekkti ágætlega tók við okkur. Eftir að læknirinn hafði rætt við hana í einrúmi í dágóða stund talaði hann við mig einslega. Byrjaði hann á að skamma mig fyrir að stunda skyndi­kynni með ókunnugri konu. Svo sagði hann mér að keyra hana beint á flug­völlinn svo hún kæmist sem fyrst aftur til Reykja­víkur. Við Guðrún skildum á góðum nótum, ræddum málið og allt í góðu. Ég jafnvel hitti hana aftur í eitt skipti í næstu Reykja­víkurferð, en það er saga sem verður að bíða betri tíma.

Þessi lífs­reynslusaga sýnir hversu ólík upplifun tveggja ungra einstaklinga getur verið, en þetta kenndi mér að vera heiðarlegri í samskiptum mínum við hitt kynið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim