Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Glittir í langþráð lyfjaleyfi hjá Helgu Rakel: „Ég hef nú fengið símtal“

„Það er rétt að það komi fram að ég hef nú fengið símtal frá LSH sem bendir til jákvæðrar niður­stöðu að lokum varðandi það að ég fái að prófa Tofersen. Ég vona auðvitað það besta en miðað við fyrri reynslu þá ætla ég að trúa því þegar ég sé það,“ svohljóðandi hefst ný færsla frá Helgu Rakel Rafns­dóttur kvikmynda­gerðarkonu.

Eftir talsverða baráttu og opinberun á torveldum samskiptum og skilvirkni virðist sem svo að rödd Helgu Rakelar hafi fengið hljóm­grunn innan Land­spítala. Eftir að hafa tjáð sig um málið á samfélags­miðlinum Facebook og fjöl­miðlar landsins hófu að fjalla um málið barst Helgu Rakel símtal um henni gefist möguleiki á að prófa lyfið Tofersen í baráttu sinni við sjúk­dóminn MND.

Í gær var viðtal við Helgu Rakel, í Kastljósi, þar sem hún rak raunir sínar. Þar var birt yfir­lýsing frá Land­spítalanum í kjölfar erindis sem aðstand­endur sendu út í gær. Frétta­stofa RÚV kallaði jafnframt eftir svörum. „Svar LSH í gær átti að sumu leyti ekki við í mínu tilfelli en ég á bara ekki meiri orku í orðaskak um þetta mál í bili. Það eru altént góðar fréttir ef skoða á verkferla og samskipti við sjúklinga í svona málum eins og kemur fram í lok yfir­lýsingarinnar,“ útskýrir Helga Rakel.

Lyfið

Lyfið sem um ræðir heitir Tofersen og gagnast þeim sem eru með SOD1 gena­gallann sem Helga Rakel er með. Lyfið getur dregið úr áhrifum sjúk­dómsins og þar með haft jákvæð áhrif á lífsgæði hennar og hreyfi­getu. Tofersen hefur verið leyft í 36 löndum í gegnum svokallað „Early Access Program“. Land­spítali Háskóla­sjúkrahús hefur hingað til hindrað það hérlendis.

Brautin skal rudd

„Ég vil líka taka fram að með því að stíga fram vil ég að brautin verði rudd fyrir alla sem þurfa á því að halda,“ segir Helga Rakel í lok færslunnar og þakkar aðstand­endum sínum, vinkonum, Kastljósi og ekki síst MND félagi Íslands fyrir veittan stuðning og hjálp í þessari erfiðu baráttu við Land­spítalann.

Hér að neðan má lesa erindi vegna máls Helgu Rakelar sem barst Lands­lækni í gær:

Reykjavík, 7. Mars 2023
Erindi til land­læknis Íslands
Vegna erindis sem sent var á yfirlækni tauga­lækninga­deildar Land­spítala Háskóla­sjúkrahúss 1. mars síðastliðinn viljum við beina þeim þáttum til Land­læknis­embættis Íslands sem hafa að gera með brota­lamir í starfsemi tauga­lækninga­deildar LHS. Þessar brota­lamir hafa haft alvarlegar afleiðingar fyrir sjúkling sem okkur stendur nærri, Helgu Rakel Rafns­dóttur, kt:xxxxxx-xxx9.
Vísað er til bréfs um málið, einnig í viðhengi.

Alvarlegar athuga­semdir við starf Tauga­lækninga­deildar LHS eru eftir­farandi:

1. Óskýrar boðleiðir og upplýsinga­gjöf

Frá því að sjúklingur ber upp erindi í október árið 2021 varðandi nýtt lyf, Tofersen með ósk um að skoðaðar séu leiðir til að prófa það hafa ekki fengist skýr svör frá sérfræðingum. Þegar ákvarðanir eru teknar fyrir tiltekinn sjúkling er ekki boðað til upplýsinga­fundar um málið með sjúklingi, sérfræðingi og aðstand­endum.

2. Tafir og engin áhersla á skilvirkni þótt erindi sé aðkall­andi

Um er að ræða lífs­hættulegan sjúkdóm sem skerðir lífsgæði og heil­brigði hratt. Ferli, samskipti og meðhöndlun innan tauga­lækninga­deildar taka ekki til greina hversu aðkall­andi málið er og komast því yfirmenn upp með tafir á svörum og ákvarðana­tökum sem hafa grafal­varleg áhrif á möguleika til að hægja á framvindu sjúk­dómsins.

3. MND teymi án sérfræði­læknis Í MND teymi deildarinnar er ekki sérfræði­læknir. Þetta hefur áhrif á hversu skilvirk upplýsinga­miðlun er á fundum um sjúk­dóminn og framvindu í lyfja­notkun innan deildarinnar.

4. Ekki gagnsæi og samræmingar í upplýsinga­gjöf til sjúklinga með MND SOD1

Sjúklingar með SOD1 gena­gallann eru hjá mismun­andi læknum og þar af leiðandi er hver og einn að nýta krafta sína í að vinna í sínum málum í stað þess að gagnsæi og skýrt utan­umhald létti sjúklingunum lífið. Þetta hefur m.a. leitt til þess að Helgu Rakel var ekki bent á klíníska rannsókn á lyfinu AP-101, sem einnig er í þróun, fyrr en eftir að sjúk­dómurinn var of langt genginn fyrir þátttöku í rann­sókninni.

5. Ekki skimað fyrir stökk­breytingu í SOD1

Um 20% sjúklinga með arfgengt MND eru með stökk­breytingu í SOD1 geninu. Sýnd sjúk­dómsins getur verið ófull­komin (incomplete penetrance) þannig að fjölskyldu­saga er ekki í öllum tilfellum vel greinanleg. Einnig hefur verið sýnt fram á nýjar (de novo) sjúkdóms­valdandi kímfrumu­stökk­breytingar í geninu. Mikilvægt getur verið að vita hvort sjúklingur er með stökk­breytinguna, bæði með tilliti til hugsanlegrar lyfja­gjafar, erfða­ráðgjafar og vísinda­rannsókna. Þrátt fyrir þetta virðist ekki vera skimað fyrir stökk­breytingu í SOD1 geninu hjá sjúklingum greindum með MND á Land­spítalanum.

6. Háskóla­sjúkrahús en ekki áhugi á þátttöku í klínískum rann­sóknum

Megin­verkefni Land­spítala Háskóla­sjúkrahúss eru þríþætt, að sinna veiku fólki, uppgötva nýja þekkingu með rann­sóknum og kenna og þjálfa fólk til starfa. Stefna tauga­lækninga­deildar virðist þó ekki vera sú að aðstoða þann hóp MND sjúklinga sem er með SOD1 stökk­breytinguna við að taka þátt í klínískum rann­sóknum eða gefa þeim tækifæri til að nýta sér lyf sem er í “Early Access Program”, lyf sem mögulega geta hægt á framvindu sjúk­dómsins og þannig bæði bætt lífsgæði og lífslíkur.

7. Ekki sýndur vilji fyrir notkun lyfja af mannúðar­ástæðum

Í Heilbrigðis­ráðuneytinu eru í vinnslu reglugerð um leyfi til notkunar lyfja af mannúðar­ástæðum.
Reglu­gerðin byggir að stórum hluta á reglugerð Evrópu­ráðsins frá árinu 2004 og markmiðið er m.a. að auðvelda aðgengi að lyfjum sem eru í yfir­standandi klínískum prófunum en hafa ekki hlotið miðlægt markaðs­leyfi, mannúðar­ástæður þurfa að liggja fyrir og lyfin eiga að vera sjúklingum að kostnaðar­lausu. Þrátt fyrir að reglugerð um notkun slíkra lyfja hafi ekki verið samþykkt hér enn, þá eru þess dæmi að undanþágulyf hafi verið notuð hérlendis, t.d. Í krabbameins­lækningum. Hins vegar virðist ekki hafa verið almennur vilji hjá læknum á tauga­lækninga­deild að auðvelda sjúklingum aðgengi að Tofersen, sem hefur verið á lista lyfja í „Early Access Program” síðan um mitt ár 2021 og hefur verið notað í mörgum ríkjum Banda­ríkjanna og í mörgum Evrópu­löndum, sem við berum okkur saman við, t.d. Í Svíðþjóð og Bretlandi.

Ofan­greindir þættir leiða til þess að MND sjúklingar með SOD1 gena­gallann hafa ekki fengið þá heilbrigðis­þjónustu sem þau myndu eiga kost á byggju þau í nágranna­löndum okkar.

Ferlið, eftir­litið og fram­vindan sem er hér lýst, þetta er óásættanlegt.
Við aðstand­endur Helgu Rakelar Rafns­dóttur hvetjum Land­læknis­embætti um að skoða þessi mál ítarlega

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim