Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Flóttamaður frá Gaza kveður Ísland eftir langa baráttu við kerfið

Mohammed Alkurd ætlar að segja sögu sína á viðburði áður en hann yfirgefur Ísland í júlí.

Mohammed Alkurd
Mohammed Alkurd Óvissa bíður Mohammeds þegar hann yfir­gefur Ísland í júlí Mynd: Facebook

Mohammed Alkurd, flótta­maður frá Gaza sem dvalið hefur á Íslandi, segist hafa ákveðið að yfirgefa landið í byrjun júlí eftir langa bið, óvissu og brott­vísunar­ákvörðun sem tekin var í máli hans.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hann birti í morgun þar sem hann lýsir reynslu sinni af íslenska hælis­kerfinu og stöðu flótta­fólks hér á landi.

Í færslunni segir Alkurd að vinur hans hafi útvegað honum lögmann eftir að brott­vísunar­ákvörðun var tekin, í þeirri von að staða hans myndi breytast.

„Eftir langan tíma af bið, tilraunum og óvissu, og eftir að brott­vísunar­ákvörðun var tekin í mínu máli fyrir nokkru síðan, reyndi vinur minn að hjálpa mér og útvegaði mér lögmann í von um að eitthvað myndi breytast. En enn sem komið er sé ég enga niður­stöðu nema meiri bið og óstöðug­leika,“ skrifar hann.

Alkurd segir að hann hafi enn ekki fengið leyfi til að vinna og gagnrýnir jafnframt meðferð íslenskra stjórn­valda á flótta­fólki.

„Ég hef enn ekki leyfi til að vinna, og margir flótta­menn hér lifa árum saman í stöðugum kvíða og óvissu, aðeins til að fá aftur synjun eða nýja brott­vísun að lokum. Því miður eru lögin og kerfið gagnvart flótta­fólki á Íslandi mjög hörð, og á þessu tímabili hef ég oft fundið fyrir óréttlæti og vanmætti þrátt fyrir allar mínar tilraunir til að byggja upp eðlilegt og öruggt líf. Þess vegna hef ég, eftir mikla umhugsun, ákveðið að yfirgefa Ísland sjálfur í byrjun júlí.“

Ætlar að segja sögu sína á opnum fundi

Áður en hann yfirgefur Ísland hyggst Alkurd standa fyrir viðburði í Reykjavík þar sem fjallað verður um stöðu flótta­fólks á Íslandi og hans eigin reynslu.

„En áður en ég fer munum við halda viðburð í Reykjavík þar sem við munum ræða opinskátt um líf flótta­fólks hér á landi, sem og þá reynslu og stöðu sem ég hef sjálfur upplifað sem flótta­maður. Við munum einnig segja frá erfið­leikum og hlutum sem margir hafa aldrei heyrt um áður. Markmiðið er að sýna raun­verulega mynd af stöðunni, án yfirborðslegra fyrir­sagna eða formlegs orðalags.“

Hann segir enn óákveðið hvar fundurinn verður haldinn en nánari upplýsingar verði birtar síðar.

Safnar frjálsum framlögum

Alkurd segir einnig að á fundinum verði safnað frjálsum framlögum.

„Á viðburðinum verður einnig safnað frjálsum framlögum, ekki aðeins svo ég geti reynt að byggja líf mitt upp á nýtt og hjálpað fjöl­skyldu minni, heldur líka vegna þess að framtíðin sem bíður mín eftir brottför er mjög óviss og erfið.“

Hann bendir á að dvalar­leyfi sitt í Grikk­landi hafi runnið út fyrir meira en einu og hálfu ári síðan, sem geri framtíð hans enn óljósari.

„Einum eða tveimur dögum eftir viðburðinn mun ég yfirgefa Ísland, og ég veit ekki hvað bíður mín eftir það, sérstak­lega þar sem dvalar­leyfið mitt í Grikk­landi rann út fyrir meira en einu og hálfu ári síðan. Það gerir framtíð mína mjög óljósa.“

Í lok færslunnar biður hann fólk um stuðning, að deila upplýsingum um viðburðinn og mæta ef kostur er þegar nánari upplýsingar liggja fyrir.

„Það eina sem ég bið ykkur um er stuðningur, að deila þessari færslu og mæta á viðburðinn í byrjun júlí ef þið getið þegar við birtum nánari upplýsingar fljótlega. Nærvera ykkar og hlý orð skipta mig miklu máli á þessum erfiða tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna