Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Barnafátækt á Íslandi – Í landi auðs þar sem þúsundir barna líða skort

Ísland er meðal auðugustu landa heimsins samkvæmt nýjustu tölum. Hér er alltaf talað um velferða­ríkið Ísland og stjórn­málamenn berja sér á brjóst og tala um góða stöðu þjóðar­búsins og fleira í þeim dúr. Þrátt fyrir ríkidæmi Íslands búa tugþúsundir Íslendinga undir fátæktar­mörkum, þar af fleiri þúsund börn. Hvernig má það vera? 

Í nýjum tölum frá Global Finance tíma­ritinu má sjá að Ísland er 17 ríkasta land heims, af rétt undir 200 löndum. Erum við fyrir ofan stór lönd á borð við Þýskaland, Svíþjóð, Ástralíu og Kanada en rétt fyrir neðan Austuríki, Holland og Danmörku, svo nokkur séu nefnd. Þá má nefna að í lífskjara­rannsókn Hagstofunnar fyrir árin 2019-2021 kom fram að íslensk heimili telja gæði eigin lífskjara í, eða nálægt, sögulegu hámarki. Þar kom fram að hlutfall heimila sem eiga erfitt með að láta enda ná saman hefði aldrei verið lægra og aldrei hefðu færri talið byrði húsnæðis­kostnaðar þungan. Hlutfall heimila sem sögðust búa við efnis­legan skort var nálægt sögulegu lágmarki og aldrei höfðu færri heimili sagst eiga í erfið­leikum með að mæta óvæntum útgjöldum. Ísland á sem sagt til hnífs og skeiðar. Það er að segja þjóðar­búið og meirihluti Íslendinga. En af þeim ríflega 375.000 hræðum sem hér búa eru um 9% lands­manna undir lágtekjumörkum samkvæmt tölum Hagstofu Íslands en árið 2020 bjuggu 10.000 börn á Íslandi við fátækt, þar af 3.000 við sára fátækt.

Þáttur Kveiks sem birtist á skjánum fyrir tveimur árum síðan, vakti gríðar­lega athygli og má segja að hafi vakið marga Íslendinga til umhugsunar en þátturinn fjallaði um fátækt á Íslandi. Þar kom fram að verst stöddu einstaklingarnir á Íslandi eru einstæðir foreldrar, öryrkjar og innflytjendur en börn sem alast upp í fátækt fá ekki sömu tækifæri og önnur börn og eru þau líklegri til að lifa við fátækt alla sína ævi. Í þættinum kom fram að hverju sinni búi um 18 til 35 þúsund manns við fátækt á Íslandi eða 5-10% lands­manna en í ár er það um 9%. Af þeim fjölda eru það um sjö til tíu þúsund sem býr við sára fátækt. Í 17 ríkasta landi heims. Árið 2020 bjuggu 11.1% barna 0-15 ára við fátækt hér við land.

Skilgreining á fátækt

Í Kveiks­þættinum var rætt við einn helsta sérfræðing Íslendinga á sviði fátæktar, Kolbein Hólmar Stef­ánsson. Sagði hann að við þekktum fátækt er við sjáum hana en að mæla hana væri annað mál. „Við erum oft að nálgast hana með ýmsum ólíkum mælingum.“ Algengast sé að miða við ákveðinn punkt í tekju­dreifingunni. „Og allir sem eru fyrir neðan hann á tilteknum tíma­punkti eru taldir búa við alla vega aukna hættu eða auknar líkur á fátækt,“ sagði Kolbeinn í viðtali við Kveik. Segir í þættinum að miðað við þessa skilgreiningu „eiga allir einstaklingar sem eru með ráðstöfunar­tekjur undir 239.200 krónum á mánuði á hættu að búa við fátækt. Og eftir því sem fjöl­skyldur eru stærri, þeim mun meiri þurfa ráðstöfunar­tekjurnar að vera. Þannig er til dæmis viðmiðið fyrir einstæða móður með eitt barn 310.960 krónur, fyrir einstæða móður með tvö börn er það 382.720 krónur, fyrir hjón er viðmiðið 358.800 og fyrir hjón með eitt barn er það 430.560 krónur.“ Tekið skal fram að þessar tölur eru tveggja ára gamlar og hafa því breyst eitthvað á milli ára.

Samkvæmt þessum tölum er stór hópur fólks sem fær örorku, félags- og atvinnleysisbætur, elli­lífeyri eða er í láglauna­störfum, undir lágtekjumörkum. „Við sjáum að það telst ekki búa við fátækt samkvæmt þeirri mælingu en af því að það er lang­varandi þarna þá er hægt og rólega búið að éta upp allt sparifé og láns­traust og skuldirnar hafa hrannast upp þá ertu komin með fólk sem raun­verulega býr við fátækt það nær ekki að standa undir nauð­þurftum til dæmis,“ sagði Kolbeinn í Kveik­þættinum marg­umtalaða og bætti við að um það bil þrír af hverjum fjórum einstaklingum undir lágtekju­marki, sé fólk í vinnu.

Ekki eru allir sammála að lágtekjumörkin gefi endilega skýra mynd af fátækt en önnur mæling er skortur á efnis­legum gæðum. Eigi þrennt við af eftir­farandi lista, býr fólk við fátækt. Passi fleira á listanum við, býr fólk við sára­fátækt.

  1. Hefur lent í vanskilum húsnæðis­lána eða annarra lána vegna fjár­skorts á síðastliðnum 12 mánuðum.
  2. Hefur ekki efni á að fara árlega í vikulangt frí með fjöl­skyldunni.
  3. Hefur ekki efni á kjöti, fiski eða sambærilegri grænmetis­máltíð að minnsta kosti annan hvern dag.
  4. Getur ekki mætt óvæntum útgjöldum.
  5. Hefur hvorki efni á heimasíma né farsíma.
  6. Hefur ekki efni á sjónvarps­tæki.
  7. Hefur ekki efni á þvottavél.
  8. Hefur ekki efni á bíl.
  9. Hefur ekki efni á að halda húsnæðinu nægjanlega heitu.Hægt er að lesa alla greinina í nýjasta tölublaði Mannlífs hér.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis