Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Glitfaxi fórst ásamt öllum 20 um borð
Glitfaxi fórst ásamt öllum 20 um borð

Þann 31. janúar 1951 lagði Dagota flugvél Flug­félags Íslands að nafni Glitfaxi af stað í áætlunar­flug frá Vestmanna­eyjum til Reykja­víkur. Um borð var þriggja manna áhöfn og sautján farþegar. Veðrið var vafasamt en hríða­bylur var úti og ekki hafði verið flogið til eða frá Eyjum í þrjá daga vegna veðursins. Rétt fyrir fimm var Glitfaxi staddur yfir stefnu­vita Reykja­víkur­flugvallar á Álftanesi en flug­stjóranum, Ólafi Jóhanns­syni var gefin heimild til að lækka flug og stefna í átt að flugbrautinn í snjónflugi. Flaug flug­stjórinn vélinni niður en þá var flug­brautin hvergi sjáanleg. Stýrði Ólafur því vélinni aftur upp að ráði flug­turnsins og flaug út á Faxaflóa. Var honum þá tilkynnt af flug­turninum að nú væri veðrið orðið skárra og honum ráðlagt að reyna annað aðflug. Lækkaði Ólafur því flugið og setti flug­vélina í stefnu en skyndi­lega rofnaði allt samband við vélina. Glitfaxi var horfinn í sæinn.

Um er að ræða eitt dular­fyllsta flugslys Íslands­sögunnar en flak flug­vélarinnar hefur aldrei fundist.

Tíminn fjallaði um flug­slysið á sínum tíma:

Glitfaxi hefir farizt milli Álftaness og Keilisness

Olíubrák á sjónum út af Hraunsnesi, björgunar­belti á floti nokkru utar, tveir flekar úr hreyfli flug­vélarinnar út af Keilisnesi

Það má nú telja víst, að flugvélin Glitfaxi hafi farið í sjóinn einhvers staðar á svæðinu milli Álftaness og Keilisness, og allir, sem í henni voru farizt þar. Fannst á þessum slóðum brak úr gólfi flugvélar og eitt björgunar­belti, og brák á sjónum út af Hraunsnesi. Virðist allt benda til þess, að slysið hafi borið mjög skjótt að og fólkið drukknað þegar í stað.

Reköld finnast

Jóhannes flug­stjóri Snorrason kom fyrstur manna auga á brakið um þrjúleytið í gær, og tilkynnti þegar, að hann sæi á tveim stöðum eitthvað í sjónum, sem gæti verið fleki úr flugvélar­gólfi. Risi það á rönd upp úr sjónum, og sæi í nýlegt brotsár. Voru flök þessi út af Keilisnesi i stefnu frá Akra­fjalli á Keflavík. Sendi Jóhannes svohljóðandi skeyti: „Hef fundið brak á sjónum. Það líkist kross­viðarfleka, brotið á hliðum og upp úr því stendur eitthvað. Gæti verið hluti af gólfi úr flugvél.“ Varð­skipið Ægir var þá statt í sex mílna fjarlægð, og kom það nú á vettvang. Kastaði björgunar­flugvél frá Kefla­víkur­flugvelli út fljótandi blysi til þess að merkja staðinn, þar sem flökin voru. Fann Ægir brátt reköldin og auk þess eitt björgunar­belti. Kom hann með þetta til Reykja­víkur í gærkvöldi.



Brakið tvímæla­laust úr Glitfaxa

Þegar er Ægír var kominn að landi, var brakið, sem fundizt hafði, tekið til rann­sóknar og varð niður­staðan sú, að brakið væri tvímæla­laust úr Glitfaxa. Var um að ræða tvo gólffleka, um tveggja metra langa eða rösklega það, og var annar mun mjórri en hinn. Er talið, að annar hafi verið hægra megin úr gólfi flug­vélarinnar, en hinn vinstra megin. Stærri flekinn var flagnaður og brotinn í annan endann og skein þar í hvítan balsavið. Við fleka þennan voru einnig brot af stóla­festingum, og hluti af áklæði af einum stólnum. Björgunar­beltið, sem fannst, var með órofnu innsigli, og hafði því sýnilega ekki verið notað. Hluti þessa alla töldu flug­virkjar og flugmenn sig þekkja, að væru úr Glitfaxa, enda voru brotsár á viði og málmi alveg ný, og ekki um brak úr annarri flugvél að gera á þessum slóðum. Umfangs­mikil leit. Þegar brakið úr flug­vélinni hafði fundizt, og sýnt þótti, að það væri úr Glitfaxa, voru leitar­flokkar allir á landi kvaddir heim, og skip og flugvélar beðin að hætta leit. — Höfðu tólf flugvélar tekið þátt í Ieitinni, en auk þess mörg skip og bátar og fjöldi fóiks á landi allt umhverfis Faxaflóa. Var leitað allt frá sjávar­máli upp til fjalla.

Fólkið, sem fórst

Eins og skýrt var frá í gær voru margir Vestmannaeyingar meðal beirra, sem fórust með Glitfaxa. Páll Jónsson skip­stjóri var að koma hingað til þess að taka við bátnum Faxaborg, og var í för með honum sumt af mönnunum, sem átti að vera á bátnum. — Kona sú, sem í blaðinu í gær var samkvæmt farþega­listanum sögð heita Marta Hjartar­dóttir, hét María Hjartarson, og barn hennar var kornungt sveinbarn, aðeins fimm mánaða. Bræðurnir Magnús Guðmundsson úr Reykjavík (ranglega sagður úr Keflavík í gær) og Guðmann Guðmundsson í Keflavík voru að koma frá arfa­skiptum, sem farið höfðu fram eftir látinn bróður þeirra í Eyjum. Loks skal það leiðrétt, að Guðmundur bóndi í Arnar­holti var ranglega nefndur Guðbjörnsson i gær. Hann var Guðbjarnason. Flug­stjóri á Glitfaxa, Ólafur Jóhannsson, var sonur Jóhanns Þ. Jósefs­sonar alþingis­manns.

Minnist afa síns

Sigfús Guttormsson frá Krossi í Fella­sveit á Austur­landi skrifaði fallega færslu á Facebook á dögunum. Í færslunni segir hann sögu afa síns og alnafna, Sigfús Guttormsson á Krossi en hann fórst með Glitfaxa þennan afdrífa­ríka dag fyrir 72 árum. Gaf hann Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færsluna

„Í janúar 1951 fór afi á Krossi, Sigfús Guttormsson, til Vestmanna­eyja. Hann hafði kennt sér meins og fór að hitta Einar bróður sinn sem var lengi læknir í eyjum til að ráðfæra sig við hann. Reyndar bjó Guðlaugur bróðir þeirra líka í Vestmanna­eyjum

Miðvikudaginn 31. janúar vildi afa fara með flugi frá eyjum til Reykja­víkur. Hann vildi fara að koma sér áleiðis heim þar sem amma, Sólrún Eiríks­dóttir, var ein heima á Krossi með sjö af börnum þeirra. Oddur, Guðný Sólveig, Guttormur, Sveinn Eiríkur, Baldur, Jón og Oddbjörg voru heima. Páll elsti sonurinn var þennan vetur í skóla á Eiðum. Þórey ólst upp á Reyðar­firði. Níu börn afa og ömmu komust til fullorðinsára.

Hjónin á Krossi

Veður var ekki sem best og það mokaði niður snjó í logni í Vestmanna­eyjum. Að afi skyldi endilega vilja fara með flugi þennan dag í þessu veðri lagðist illa í Margréti konu Einars bróður afa. Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf og bað hann að um að fresta för sinni til morguns. Afi hélt sínu striki með þá ætlun sína að komast sem fyrst heim til fjöl­skyldu sinnar sem beið hans.

Seinni partinn tók flugvélin Glitfaxi á loft frá flug­vellinum í Vestmanna­eyjum. Áfanga­staður var Reykja­víkur­flugvöllur. Flugvélin kom til aðflugs en varð frá að hverfa vegna þess að dimmt él gekk yfir borgina. Flug­mennirnir fengu skilaboð frá flugturni um að fljúga hring og bíða þess að birti til. Í þessu flugi lenti Glitfaxi í hafinu og fórst. Önnur flugvél fór, á svipuðum tíma þetta síðdegi, sömu flugleið frá eyjum og til Reykja­víkur. Hún lenti heilu og höldnu í Reykjavík.

Margar spurningar og kenningar vöknuðu í kjölfarið á slysinu og hafa lifað með fjöl­skyldum allra þeirra sem fórust. Svör hafa ekki legið á lausu. Mörgum sem tengjast harm­leiknum hefur fundist að hægt væri að varpa ljósi á eitt og annað. Opinber­lega er stað­setning flaks Glitfaxa óþekkt. Með Glitfaxa fórust 20 manns.

Frásögnin hér að ofan kemur til mín frá pabba, systkinum hans, tveimur börnum Einars læknis og fleirum. Þetta er okkar saga. Fjöl­skyldur allra hinna sem fórust eiga sér sínar sögur.

Í dag eru 72 ár liðin frá því að afi fórst. Í kvöld logar á kerti á ferða­kofforti afa hér í stofunni.Hvíl í friði!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim