Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

„Ég ætla ekki að fara að sýna honum Bjössa hvernig hann nauðgaði mér“

„Ef hann yrði dæmdur fyrir nauðgun myndi ég reka hann,“ segir Björn Leifsson, eigandi World Class líkams­ræktar­veldisins, um ásakanir um nauðgun á hendur einka­þjálfara fyrirtæksins. Snemma á árinu var einka­þjálfari í World Class kærður fyrir nauðgun og er málið til meðferðar hjá ríkis­saksóknara.

Björn segir málið vera persónulegt á milli konunnar sem kærði og einka­þjálfarans sem hún sakar um nauðgun. „Ef hann yrði dæmdur fyrir nauðgun myndi ég reka hann,“ sagði Björn í samtali við DV. Aðspurður segist hann einnig myndu grípa til aðgerða ef manninum yrði birt ákæra. Þá kemur fram í frétt DV að Björn telji að þau gögn sem konan hefur sýnt honum séu ófullnægjandi. Þannig sé kæran í málinu, eins og hún birtist honum, lítið annað en yfirsvert skjáskot.

„Ég ætla ekki að fara að sýna honum Bjössa hvernig hann nauðgaði mér,“ segir konan en skjáskotið sem Björn vísaði í sýnir greini­lega hver kærði hvern til lögreglu og að kært hafi verið fyrir nauðgun. Verknaðar­lýsing er hins vegar svert og ólæsileg, eðli málsins samkvæmt.

Hið meinta brot átti sér stað í febrúar 2016. Konan æfir sjálf hjá líkams­ræktar­veldinu og fullyrðir að þar hafi maðurinn ítrekað sýnt af sér ögrandi hegðun í hennar garð. „Hann ógnaði mér hreinlega í síðustu viku. Ég bað um að hann yrði færður til í starfi þannig að hann hætti að starfa í World Class Laugum svo ég fái að æfa í friði og þurfi ekki að óttast að hann ráðist á mig,“ segir hún.

Hinn kærði einka­þjálfari ræddi líka málið við DV. Hann harðneitar öllum ásökunum um nauðgun og segir þau einfald­lega hafa haft samfarir. Maðurinn segist vera tiltölu­lega rólegur yfir ásökununum þar sem samviska hans sé hrein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis