Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Megas – þögnin sem mætti þeim og ríkir enn í dag: „Replasera kvenfólkið með litlum sætum strákum“

Undir lok 9. áratugarins fór tónlistar­maðurinn Megas í nokkur ferðalög til Tælands þar sem hann komst í kynni við kynlífs­túrisma með ungum tælenskum drengjum. Einn þeirra fluttist síðan um hríð til Íslands með Megasi. Þetta varð honum að yrkisefni á þremur af hans þekktustu og mest seldu plötum, Loftmynd (1987), Höfuð­lausnir (1988) og Bláir skuggar (1988).

Þessi verk og sérstak­lega viðbrögðin við þeim, vekja upp margar spurningar, þar sem af íslenskum fjöl­miðlum að dæma var líkt og truflandi hinsegin efnistök þessara verka hafi verið gagngert þögguð niður, á meðan Megas sjálfur hefur talað opinskátt um efnið í lögum og viðtölum.

Þorsteinn Vilhjálmsson kom fram í fyrirlestraröð Hinsegin Ísland í alþjóð­legu samhengi sem er haldin í samstarfi RIKK – Rannsókna­stofnunar í jafnréttis­fræðum við Háskóla Íslands og Jafnréttis­skólans (GRÓ-GEST) nú á vormisseri 2022.

Fyrir­lestur Þorsteins nefndist „Replasera kven­fólkið með litlum sætum strákum“: Megas, hinsegin­leiki og friðhelgi lista­mannsins“ og var hann á dagskrá á Jafnréttis­dögum sem var haldinn þann 17. febrúar í fyrirlestrasal Þjóð­minjasafns Íslands og sýndur í beinu streymi.

Í fyrir­lestrinum voru textar og tónlist Megasar orðræðu­greind ekki aðeins á fyrr­nefndum plötum heldur líka þögnin sem mætti þeim og ríkir um þær enn í dag. Þorsteinn leitað saman­burðar í erlendri umræðu eftir #MeToo-byltinguna um þá friðhelgi sem listamenn njóta gagnvart opinberum siðferðis­legum viðmiðum í kynferðis­málum.

Þorsteinn valt upp hvað þögnin um verk Megasar hafi þýtt fyrir íslenska hinsegin sögu og sögu kynverundar hér á landi.

Fyrir­lesturinn kafar ofan í sögu Megasar og afstöðu­leysi fyrri tíma, en er jafnframt óþægileg áminning um siðferði­lega ágalla í samfélaginu.

Hér er hægt að hlusta á fyrir­lesturinn í heild sinni. 

Þorsteinn er doktorsnemi við Mennta­vísindasvið HÍ. Doktors­verkefni hans er á sviði hinsegin sögu og fjallar um skilyrta innlimun samkyn­hneigðra fyrirmyndar­borgara inn í íslensku þjóðina á árunum 1990–2010.

Þorsteinn starfaði áður sem sjálfstætt starfandi fræði­maður við Reykja­víkur­Akademíuna og hefur gefið út nokkurn fjölda greina á sviði sögu kynverundar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki