Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Bítlarnir gefa út nýtt lag: „Þetta er frekar tilfinningaþrungið“

Bítlarnir
Bítl­arnir

Bítl­arnir gefa út glæ­nýtt lag í næstu viku.

„Lokalagi“ vin­sæl­ustu hljóm­sveitar sög­unnar, Bítlanna, hefur verið beðið lengi en lagið, Now and Then, kemur loks út í næstu viku eða þann 2. nóv­em­ber næst­kom­andi. Notast var við gervi­greind­ar­tækn­ina sem Peter Jackson not­aði í heim­ild­ar­mynd­inni Get Back. Með tækn­inni var hægt að ein­angra og bæta söng John Lennon í lélegum upp­tökum sem til voru á kassettu. Lagið kemur út á nýrri safn­plötu Bítlanna en þar má finna end­ur­bættar útgáfur af bestu lögum þeirra John, Paul, George og Ringo.

„Þarna var hún, rödd Johns, krist­al­tær,“ sagði Paul McCartney í yfir­lýs­ingu. „Þetta er frekar til­finn­inga­þrungið. Og við spilum allir í því, þetta er ósvikin Bít­la­upp­taka. Að vera enn að vinna við Bítlatón­list árið 2023, og vera í þann veg að gefa út nýtt lag, sem almenn­ingur hefur ekki heyrt, mér finnst spenn­andi hlutur.“

Ringo Starr tjáði sig einnig í yfir­lýs­ing­unni:

„Þetta var það næsta sem við komumst því að hafa hann aftur í her­berg­inu svo það var mjög til­finn­inga­þrungið fyrir okkur alla. Það var eins og John væri þarna, þú veist. Það er steikt.“

Now and Then var samið og sungið af John Lennon seint á átt­unda ára­tugnum, heima hjá honum í Dakota-bygg­ing­unni í New York-borg. Árið 1994 gaf Yoko Ono, ekkja Johns, Paul, kassettu með hráum upp­tökum af þremur óút­gefnum lögum Lennons. Þar voru lögin Free as a Bird og Real Love, sem komu stuttu síðar út undir nafni Bítlanna. Þriðja lagið var Now and Then en vegna lélegra hljóð­gæða á upp­tök­unum var ákveðið að salta lagið en halda upp­tökum af spileríi þeirra George, Paul og Ringo. Og nú, eftir nokkra daga, mun heim­ur­inn heyra, lík­lega í síð­asta skipti, nýtt lag með einu merkasta bandi allra tíma, Bítlunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Öskurapi með vesen

Tveir gistu í fangageymslum lögreglu í nótt.
Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027