Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Séra Auður Eir segir ásakanirnar ósannar: „Fullkomlega, algjörlega og óafturkallanlega viss“

​​Blaða­maður hitti séra Auði Eiri Vilhjálms­dóttur til þess að falast eftir svörum hennar við þeim ásökunum sem á hana, Bjarg og starfs­konur heimilisins hafa verið bornar í gegnum tíðina. Meðal þeirra ásakana eru þær sem koma fram í viðtali við Sonju Ingva­dóttur í nýjasta tölublaði Mannlífs, en hún er ein þeirra sem vistuð var á Bjargi á sínum tíma.

Hér verður stiklað á stóru í svörum séra Auðar Eirar en viðtalið við hana verður birt í heild sinni á vefnum innan tíðar.

„Áreiðanlega, fullkomlega og óafturkallanlega viss“

Í gegnum tíðina hafa komið fram ásakanir um andlegt, líkamlegt og í sumum tilfellum kynferðislegt ofbeldi gegn stúlkum á Bjargi, þar sem tungum var jafnvel sagt hafa verið þröngvað upp í munn þeirra.

Blaða­maður spyr séra Auði Eiri hvernig hún svari því.

„Ég segi að ég sé áreiðanlega, fullkomlega og óaftur­kallanlega sannfærð um að þetta sé uppspuni.“

Hún segist algjör­lega viss í sinni sök og talar um ósann­sögli sem hugsanlega geti lagt líf fólks í rúst.

Séra Auður Eir spyr hvað manneskja eigi að gera sem sé ásökuð um brot. „Hvað á að gera með svona ásakanir?“

Blaða­maður spyr hvað séra Auði Eiri finnist sjálfri.

„Svo ég tali nú bara um þetta mál þá er ég fullkomlega, algjör­lega og óaftur­kallanlega viss um að þessar konur hafa aldrei beitt þessar stúlkur kynferðislegri áreitni. Þetta eru hryllilegustu ásakanirnar vegna þess að kynferðis­ofbeldi leggur auðvitað líf fólks í rúst. En ásakanir um kynferðis­ofbeldi gera það líka.“

Aðspurð segist séra Auður Eir ekki kannast við nokkurs konar ofbeldi innan Hjálpræðis­hersins.

„Alls ekki. Því fer öldungis fjarri. Nú er ég svona jafn viss og ég var um kynferðis­áreitnina. Nei, öldungis ekki.“

Sonja segir í viðtali sínu að séra Auður Eir hafi sagt að það ætti að ala stúlkurnar á Bjargi í þrælsótta. Þegar það er nefnt við séra Auði Eiri segist hún ekki hafa sagt það.

„Aldrei nokkurn tíma. Og ég hef ekki hugsað það.“

Kannast ekki við einangrun né hótanir

Sonja, ásamt öðrum stúlkum, hefur lýst vistinni á Upptöku­heimilinu sem afar slæmri og lítilsvirðandi, þar sem þær voru hafðar í einangrun svo dögum skipti, með ekkert við að vera. Þær, sem og starfs­konur Upptöku­heimilisins hafa sagt starfs­konur Bjargs hafa óskað eftir slíkri einangrun, þar á meðal séra Auði Eiri.

„Já, þær verða bara að gera það og tala við Upptöku­heimilið. Ég held það bara. En þegar þær eru þar, þá eru þær á vegum Upptöku­heimilisins.“ Hún segist aldrei hafa sent stúlkur í einangrun.

Þegar Sonja yfirgaf Bjarg segir hún séra Auði Eiri hafa hótað henni því að ef hún yrði ófrísk og eignaðist barn, yrði hún send í fangelsi til 25 ára aldurs.

Séra Auður Eir gengst ekki við þessu.

„Ég hef bara aldrei sagt þetta. Aldrei.“

Séra Auður Eir segir það ekki rétt að stúlka hafi verið lokuð inni á Bjargi í níu mánuði eftir að hún var orðin sjálfráða, líkt og Sonja hefur lýst.

„Við ákveðum ekki hverjir áttu að vera á Bjargi og hverjir ekki. Það voru barna­verndar­nefndirnar. Svo það er algjör­lega útilokað að við höfum ráðstafað einni eða annarri stúlku. Barna­verndar­nefndirnar ákváðu hvenær þær komu og hvenær þær fóru.“

Þetta brot úr viðtali við séra Auði Eiri er hluti af umfjöllun um stúlkna­heimilið Bjarg, sem má finna í nýjasta tölublaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram