Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fletti níu sinnum í sjúkraskrá konu án tilefnis

Í kvörtun vegna málsins kom fram að starfs­maðurinn hefði aldrei komið að meðferð konunnar

Landspítalinn
Land­spít­al­inn Mynd: Stundin/Kristinn

Persónu­vernd hefur áminnt starfs­mann Land­spítalans fyrir að fletta ítrekað upp sjúkra­skrá konu án þess að hafa lögmætt erindi í hana. Starfs­maðurinn, sem er kona, fletti sjúkra­skrá hennar upp níu sinnum á rúmlega tveggja og hálfs árs tímabili, frá 2021 til 2024.

Í kvörtun vegna málsins kom fram að starfs­maðurinn hefði aldrei komið að meðferð konunnar. Hún gat heldur ekki sýnt fram á að uppflettingarnar hefðu tengst störfum hennar eða að önnur lögmæt ástæða hefði verið fyrir þeim.

Eftirlits­nefnd um rafræna sjúkra­skrá á Land­spítala taldi háttsemina brjóta gegn lögum um sjúkra­skrár og lögum um réttindi og skyldur ríkis­starfsmanna. Málið var tilkynnt til embættis land­læknis og Persónu­verndar.

Starfs­maðurinn svaraði ekki beiðni Persónu­verndar um að tjá sig og skilaði ekki umbeðnum upplýsingum.

Persónu­vernd taldi starfs­manninn sjálfan bera ábyrgð á uppflettingunum þar sem hún hefði farið út fyrir aðgangs­heimildir sínar. Uppflettingarnar samrýmdust ekki persónu­verndar­lögum og var starfs­maðurinn áminntur. Ekki þótti þó tilefni til að leggja á hana stjórnvalds­sekt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum