Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Hjalti á og rekur Íslensku Klíníkina í Búdapest: „Öll sérfræðiþekkingin er á sama stað“

Hjónin Hjalti Garð­ars­son og Hrafn­hildur Sig­urð­ar­dóttir eru eig­endur tann­lækna­stof­unnar Íslenska Klíníkin í Búdapest. Þau keyptu stof­una með tækjum og öllu til­heyr­andi í miðjum Covid-far­aldri. Hjalti starf­aði áður á stof­unni sem íslenskur umboðs­maður hennar.

Hjalti er for­stjóri stof­unnar en á henni starfa hinir ýmsu sér­fræð­ingar innan tann­lækn­inga. Á stof­unni eru síðan tveir ráð­gjafar í fullu starfi, sem ann­ast mikið til sam­skipti við við­skipta­vini stof­unnar.

Mannlíf lagði nokkrar spurn­ingar um stof­una og umhverfið í Búdapest fyrir Hjalta, sem verða birtar hér á vefnum.

Íslenska Klíníkin í Búdapest

Hvers vegna ákvaðstu að kaupa stof­una og fara út í þennan rekstur?

„Ég byrj­aði 2018 sem íslenskur umboðs­maður fyrir Budapest Klinikken. Ég heill­að­ist strax af þessu concepti, það er að hafa allt á sama stað; tann­lækna­stofu, hótel og spa. Mér gekk vel að fá til okkar Íslend­inga og allir voru ánægðir. Svo kom Covid og stofan varð að loka í 10 mán­uði.

Ég var í stöð­ugu sam­bandi við norsku eig­end­urna og upp úr ára­mót­unum 2020 og 2021 ákváðu norsku fjár­fest­arnir að þeir ætl­uðu ekki að dæla meiri pen­ingum í fyr­ir­tækið. Ég gerði þeim til­boð, sem þeir tóku og ég keypti þannig öll tæki og tól. Ég gerði samn­ing við Aquaworld hót­elið og þannig höfum við getað látið hlut­ina ganga fyrir sig eins og ekk­ert hafi í skorist.“

Hótelið Aquaworld, sem hýsir sömu­leiðis tann­lækna­stof­una, heilsu­lind og sund­lauga­garð.

Hver upp­lifir þú að sé helsti mun­ur­inn á tann­lækna­þjón­ustu í Ung­verja­landi og tann­lækna­þjón­ustu á Íslandi?

„Stærsti mun­ur­inn á tann­lækna­þjón­ustu á Íslandi og í Ung­verja­landi er verðið. Þar fyrir utan eru hérna stórar tann­lækna­stofur, eins og Íslenska Klíníkin í Búdapest, þar sem allir sér­fræði­læknar eru á sama stað. Annað sem má kannski nefna eru tann­holds­sjúk­dómar. Við erum að fá allt of marga til okkar með grass­er­andi tann­holds­sjúk­dóma, sem hafa aldrei verið greindir í tann­lækna­heim­sóknum þeirra á Íslandi.“

Geturðu sagt okkur frá tann­hreinsi­tæk­inu ykkar?

„Skað­legar bakt­er­íur í munni mynda sýru sem ásamt mat­ar­leifum og slími myndar tann­sýklu. Tann­sýklan liggur helst þar sem tennur og gómur mæt­ast og svo á milli tann­anna. Bakt­er­íur tann­sýklunnar nær­ast á sykri og fram­leiða sýru sem leysir upp gler­ung tannar á ákveðnu svæði og tann­skemmd eða hola mynd­ast í tönn­inni. Algeng­ast er að þetta ger­ist þar sem óhrein­indi fá að liggja óhreyfð á tönn­unum.

AIRFLOW® Proph­y­laxis Master er nýjasta EMS-upp­finn­ingin fyrir „Guided Biofilm Therapy“: Einstök lausn fyrir tann­sýklu, for­varnir og við­hald. Tækið er hannað til mik­illar fag­legrar notk­unar og ein­kenn­ist af ein­stakri vinnu­vist­fræði og mik­illi nákvæmni, er auð­velt í við­haldi og í sam­ræmi við ströng­ustu hrein­læt­is­staðla. AIRFLOW® Proph­y­laxis Master hefur verið hann­aður með ströng­ustu kröfur um frammi­stöðu, öryggi og þæg­indi í huga. Hann er sér­stak­lega smíð­aður til að koma til móts við þrjár kjarna­með­ferðir leið­andi líffilmu­með­ferðar.

AIRFLOW® Plus duft fjar­lægir á þægi­legan og skil­virkan hátt líffilmu, bletti og ungan tann­stein og dregur úr þörf­inni fyrir hand- og raf­tækja­búnað. Ekki lengur gúmmí­bollar, burstar og mauk. PIEZON® NO PAIN með PS tæki skilar lág­marks ífar­andi mæli­kvarða þar sem þörf er á. Með­ferðin er fram­kvæmd með stýrðu vökva­hita­stigi.

Í stuttu máli sagt og ekki eins tækni­legt, þá gerum við tann­steins og tann­holds­hreinsun nán­ast sárs­auka­laust með þessu EMS tæki.“

Dr. Strémen Zsófia að störfum á Íslensku Klíník­inni í Búdapest.

Hver myndir þú segja að væri helsti kost­ur­inn við Íslensku klíník­ina?

„Helsti kost­ur­inn við Íslensku Klíník­ina er að við erum með íslensku­mæl­andi ráð­gjafa sem fara í gegnum allt ferlið með við­skipta­vin­unum. Allir okkar tann­læknar eru með fram­halds­menntun, þannig að öll sér­fræði­þekk­ingin er á sama stað. Stofan er hrein, and­rúms­loftið er þægi­legt og starfs­fólkið er allt alúð­legt.“

Hvað gera ráð­gjaf­arnir á stof­unni?

„Ráð­gjaf­arnir fara yfir aðgerð­arplön sem tann­lækn­arnir gera og tryggja það að allir skilji  hvað það er sem þarf að gera. Einnig eru þeir á staðnum, fólki til halds og trausts, og finna með þeim lausn sem hentar þeim. Ráð­gjaf­arnir okkar eru allir íslenskir, þannig að tungu­mála­erf­ið­leikar eru ekki til staðar hjá okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027