Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

„Hrafn var náttúruafl sem fékk fólk til að blómstra en svo gat flætt um eins og glóandi hraun“

„Hrafn var náttúruafl, eins og þau sem þekktu til hans munu segja ykkur á næstu dögum. Gat bæði fengið fólk og félög til að blómstra. En gat svo flætt um eins og glóandi hraun; ómótaður kraftur sem ómögulegt var að segja til um hvað yrði úr eða ætlaði sér. Og það gat orðið ansi heitt og háskaleg nærri Hrafni. Og kalt í buskanum fyrir þau sem elskuðu hann, þegar hann var skyndi­lega horfinn burt til annarra verka,“ skrifar Gunnar Smári Egilsson formaður Sósíalista­flokks Íslands, um félaga sinn Hrafn Jökulsson sem nú er látinn.

Gunnar Smári Egilsson

„Hrafn reyndist mér vel þegar enginn vildi ráða mig til nokkurra verka seint á síðustu öld. Hann var þá ritstjóri á Alþýðu­blaðinu og leyfði mér að skrifa þar greinar, meira að segja að hæðast að nýkjörnum forseta í einskonar framhalds­sögu sem við kölluðum Bessa­staða­bækurnar. Hann las líka yfir bók sem ég skrifaði. Í raun skrifaði ég bókina fyrir Hrafn, mætti með nýjan kafla í hverri viku eins og Hrafn þyrfti að senda hann í prentun þá um kvöldið.“

Gunnar Smári bætir því við að hann og Hrafn voru „samt ekki miklir mátar í sjálfu sér, höfðum unnið saman, þekktum hvorn annan og gátum skemmt okkur með samtali. En við vorum ekki það sem kalla má vini. Ég hafði orðið vélarvana út á sjó, siglt í höfn hjá Hrafni og stungið mér í samband við orku­vélina sem hann var. Eins og svo margir gerðu. Síðustu samskipti okkar voru þegar hann var allt í einu mættur í ponsjó inn á stofugólf og sagði sjö sögur í einu. Við náðum ekki öllu en Mosi hundurinn okkar öllu. Mosi gapti af lotningu á Hrafn og það var eins og hann vildi segja að ef hann væri maður þá væri hann akkúrat eins og Hrafn. Hrafn væri maður sem hafði sprengt af sér þessar hömlur sem gerðu menn svo þvingaða og herpta í augum hunda. Og þetta var gagnkvæm ást og virðing. Hvar sem Hrafn hafði farið var fólk að reyna að hemja hann og dempa. Mosi stóð hins vegar með honum í einu og öllu. Mér fannst því að Mosi einn gæti fylgt Hrafni og passað, hann yrði að verða verndar­engill Hrafns í háska hans.“

Gunnar Smári segir frá því þegar hann, Mosi og Hrafn fóru í ferðalag:

„Við keyrðum þrír norður yfir heiðar um kvöldið; ferð sem varð söguleg og endaði í dramatískum hápunkti, en er svo flókin og djúp að ég hef ekki enn vit til að segja hana.“

Bætir við:

„Ég hitti Hrafn nokkrum sinnum eftir þetta. Hann sagði mér frá nauðungar­vistun og því ofbeldi sem fólk má þola inn á geðdeildum. Ég þekkti til þessa, hafði unnið á Kleppi sem ungur maður. Allt er þetta sorgleg saga. Það væri hægt að komast hjá miklu ofbeldi og kúgun ef fólk fengi oftar að vera eins og það er. Stundum er lækningin verri en sjúk­dómurinn. Og hvaða máli skiptir þótt einhver sé ekki í jafnvægi? Það er ekki eins og við hin séum alltaf í lagi. Stundum er það meira að segja hálf sturlað að þykjast vera í lagi í veröld þar sem sársauki og óréttlæti ólga undir yfirborði sem helst slétt vegna daunillar fitu­brákar sem liggur yfir öllu.

Ég sendi fólkinu hans Hrafns samúðar­kveðjur. Þau eiga auðvitað stórkostlegar minningar um þennan logandi anda. Sem brann svo skyndi­lega upp og er horfinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“