Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hörður um landsliðsþjálfarann: „Heiðar­leiki er oft eitt­hvað sem vantað hefur í svör Arnars“

Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari.
Arnar Þór Við­ars­son lands­liðs­þjálf­ari.

Íþrótta­frétta­maðurinn Hörður Snævar Jónsson ritar athyglis­verðan pistil um Arnar Þór Viðarsson landsliðs­þjálfara karla í fótbolta og störf hans:

Hörður Snævar Jónsson er íþrótta­stjóri Torgs.

„Arnar Þór Viðars­son, lands­liðs­þjálfari Ís­lands, hefur verið upp við kaðlana í rúmt ár, svör hans í kringum hita­mál lands­liðsins hafa oft á tíðum ekki verið sann­færandi og gengi liðsins slakt,“ skrifar Hörður og heldur áfram:

„Þjálf­arinn mætti hins vegar klár í slaginn á frétta­manna­fund síðasta föstu­dag þar sem hann valdi hóp sinn fyrir komandi verk­efni. Heiðar­leiki er oft eitt­hvað sem vantað hefur í svör Arnars en þegar kom að því að ræða mál Alberts Guð­munds­sonar var þjálf­arinn loks heiðar­legur í svörum.

Albert Guð­munds­son.

Blaða­menn Frétta­blaðsins vissu af vanda­málum í sam­skiptum Arnars og Alberts í verk­efni liðsins í júní og spurðu þjálf­arann út í þau. Þá þóttist Arnar koma af fjöllum þegar hann var spurður. Nú á­kvað Arnar að vera heiðar­legur með málið og sagði frá því að hegðun Alberts hefði orðið til þess að hann vilji ekki vinna með honum á næstunni. Ekki eru allir sam­mála um að rétt sé að taka Albert út úr hópnum en valið er þjálf­arans og ef hann hefur engan á­huga á að vinna með leik­manni er betra fyrir alla að sá leik­maður sitji heima.“

Hörður bætir við að „Arnar var hið minnsta heiðar­legur í svörum; Arnar hefði hins vegar getað verið ögn heiðar­legri í svörum sínum þegar hann fór að ræða Birki Bjarna­son.

Birkir Bjarna­son.

Hann sagði Birki hafa staðið sig frá­bær­lega innan sem utan vallar undan­farið ár, vel má vera að Birkir hafi staðið sig frá­bær­lega utan vallar í erfiðri stöðu en innan vallar hefur Birkir átt veru­lega erfitt upp­dráttar,“ segir Hörður og máli sínu til stuðnings nefnir hann að „í gögnum sést að hlaupa­tölur Birkis eru ekki þær sömu og skilaði miðju­maðurinn rétt um átta kíló­metrum í einum af leikjum sumarsins. Birkir var þá einn sem djúpur miðju­maður og eðli­legar tölur væru í kringum 12 kíló­metra.

Birkir hefur verið langt frá sínu besta innan vallar með lands­liðinu um langt skeið og það sér Arnar Þór Viðars­son eins og allir aðrir sem vilja sjá það. Vonandi finnur Birkir sitt gamla form í komandi verk­efni en hann er leikja­hæsti leik­maður í sögu Ís­lands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“