Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Írska stórleikkonan Brenda Fricker er látin

„Við munum aldrei sjá aðra eins og hana og heimurinn er fátækari eftir fráfall hennar.“

Brenda Fricker
Brenda Fricker Brenda í hlut­verki dúfu­kon­unnar í Home Alone 2. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Óskars­verðlauna­leikkonan Brenda Fricker er látin, 81 árs að aldri. Umboðs­maður hennar staðfesti andlátið í dag. Fricker var þekktust fyrir hlutverk sín í My Left Foot, sem færði henni Óskars­verðlaun, og Home Alone 2: Lost in New York.

Umboðs­maður hennar, Phil Belfield, sagði í yfir­lýsingu: „Við munum aldrei sjá aðra eins og hana og heimurinn er fátækari eftir fráfall hennar. Það voru forréttindi að fá að þekkja hana, elska hana og starfa með henni. Hún mun ávallt eiga sérstakan stað í hjarta mínu og hjörtum ótal kvikmynda- og sjónvarps­aðdáenda um allan heim.“

Fricker lék hjúkrunar­fræðinginn Megan Roach í bresku sjónvarps­þáttunum Casualty til ársins 1990 og kom einnig fram í kvik­myndum á borð við So I Married an Axe Murderer, Angels in the Outfield, A Time to Kill, Veronica Guerin og síðari heims­styrjaldar­myndinni Closing the Ring, sem Sir Richard Attenborough leik­stýrði.

Árið 1990 varð Fricker fyrsta írska leikkonan til að hljóta Óskars­verðlaun þegar hún var valin besta leikkona í auka­hlutverki fyrir túlkun sína á Bridget Brown, móður Christys Brown, sem Daniel Day-Lewis lék í kvik­myndinni My Left Foot frá 1989. Day-Lewis hlaut jafnframt Óskarinn fyrir besta karl­hlutverk.

Í þakkar­ræðu sinni þakkaði Fricker Christy Brown „fyrir að vera á lífi“ og tileinkaði verð­launin jafnframt raun­verulegri móður hans.

Margir muna einnig eftir henni sem „Dúfu­konunni“ í Home Alone 2: Lost in New York frá 1992. Þar lék hún heimilis­lausa konu í Central Park sem Kevin McCallister, leikinn af Macaulay Culkin, óttast í fyrstu en verður síðar góðvinur hennar. Hún bjargar honum að lokum og varð ein eftir­minnilegasta persóna myndarinnar.

Í viðtali við The Times árið 2024 sagðist Fricker finna fyrir því að eldri leikkonur fengju sífellt færri tækifæri.

„Það er einfald­lega ekki skrifað fyrir eldri konur. Shakespeare skrifaði fyrir eldri konur, en það gera ungir handrits­höfundar ekki lengur,“ sagði hún og bætti við að konur yrðu að hennar mati nánast „ósýnilegar“ eftir sjötugt.

Brenda Fricker fæddist í Dublin. Hún ætlaði upphaf­lega að feta í fótspor föður síns og verða blaða­maður en hóf leikferil sinn fyrir tilviljun eftir lítið hlutverk í kvikmynd árið 1964.

Hún kom einnig fram í fyrstu sápuóperu Írlands, Tolka Row, og síðar í Coronation Street áður en hún sló í gegn í Casualty. Hún sneri aftur í þá þætti tveimur áratugum síðar í áhrifa­miklu kveðju­hlutverki þar sem persóna hennar, Megan Roach, glímdi við krabba­mein.

Fricker var gift Barry Davis í 15 ár en þau skildu árið 1988. Hún hafði mikinn áhuga á ljóðum, Guinness-bjór og snóker og sagði eitt sinn í gamni að hún hefði keppt við alla 17 meðlimi tökuliðs My Left Foot í billjard og haft betur gegn þeim öllum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu