Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

„2027 lítur vel út“

Benedikt Freyr Jónsson
Benedikt Freyr Jónsson Er þekktur plötu­snúður og tón­list­ar­maður Mynd: Benedikt Freyr Jónsson/Instgram

Benedikt Freyr Jónsson, plötu­snúður og meðlimur íslensku rapp­sveitarinnar Forgotten Lores, hefur á undan­förnum árum staðið fyrir komu fjölmargra erlendra rapp­listamanna til Íslands. Hann segir markmiðið ekki aðeins vera að halda tónleika heldur einnig að styrkja íslenska rapp­senuna og byggja upp menningu í kringum hana.

Áhugi Benedikts á tónleika­haldi og komu erlendra lista­manna til landsins nær langt aftur. Hann segir vegferðina hafa hafist í kringum árið 1999 þegar hann aðstoðaði Robba Kronik við viðburði á vegum Kronik. Árið 2001 flutti hann síðan rapp­sveitina Lone Catalysts til Íslands.

„Fyrir mér þá er þetta partur af því að hafa senu á Íslandi og búa til kúltur,“ segir Benedikt en hann hefur sjálfur flutt inn listamenn á borð við Mos Def, Talib Kweli og Mobb Deep.

Ástríðan ræður för

Benedikt segist fyrst og fremst velja þá erlendu listamenn sem sjálfur höfða til hans. Hann flytji inn tónlistar­fólk sem hann hlustar á og spilar sjálfur enda sé tónlistin drifin áfram af ástríðu.

Hann telur komu erlendra rappara einnig geta haft jákvæð áhrif á íslenska tónlistar­senu. Slíkir viðburðir geti kveikt neista hjá íslenskum lista­mönnum og skapað þeim tækifæri til að koma fram. Íslenskir rapparar hafa meðal annars fengið að hita upp fyrir erlenda listamenn á viðburðunum.

Benedikt segir jafnframt sérstakt að upplifa gleðina sem myndast meðal tónleika­gesta þegar erlendir listamenn stíga á svið hér á landi.

Spennandi ár framundan

Þegar Benedikt er spurður hvaða listamenn hann dreymi um að fá til Íslands vill hann ekki gefa mikið upp að svo stöddu. Hann gefur þó sterklega til kynna að ýmislegt sé í bígerð.

„2027 lítur vel út,“ segir hann og bætir við að hann hafi verið í viðræðum við nokkra listamenn og unnið að skipulagningu í langan tíma.

Hann hvetur áhugasama til að fylgjast með Live Project á samfélags­miðlum þar sem frekari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur.

Forgotten Lores hefur aldrei hætt

Benedikt er jafnframt meðlimur Forgotten Lores, sem hefur um árabil skipað stóran sess í íslenskri rappsögu en langt er síðan hljóm­sveitin gaf út lag. Hann segir ýmislegt vera að gerast í kringum hópinn og bendir á að Forgotten Lores hafi í raun aldrei hætt störfum

„Bandið er náttúru­lega hópur af vinum en ekki beint hljómsveit, þess vegna hefur FL aldrei hætt, bara unnið í öðrum hlutum,“ segir Benedikt.

Næsti stóri viðburður Benedikts verður á morgun þegar bandaríska rapp­sveitin Tha Alkaholiks kemur fram í Iðnó. Íslenska rapp­sveitin Arkir kemur jafnframt saman af þessu tilefni og sér um upphitun.

Benedikt lofar öflugu kvöldi og segir hágæða rapp­tónleika framundan í Iðnó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt